Fasteignaleitin
Skráð 13. okt. 2026

Ránargata 7

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
84.1 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
74.900.000 kr.
Fermetraverð
890.606 kr./m2
Brunabótamat
46.950.000 kr.
Byggt 1929
Jarðhæð
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20017921
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Eignamiðlun kynnir:

Björt og vel skipulögð þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð, ásamt útleigueiningu í kjallara, í þriggja íbúða húsi við Ránargötu 7 í Reykjavík. Frábær staðsetning í einni af grónari götum bæjarins. Íbúðin er í göngufæri frá miðbænum og allri helstu þjónustu. Íbúðin er skráð 82,1 fm samkvæmt HMS. Fallegt stafaparket er í eigninni.

Nánari lýsing:
Gengið er inn um sameiginlegan inngang með tveimur íbúðum efri hæðar, fallegur viðarstigi í sameign.
Gangur íbúðar tengir saman allar vistverur og er með parketi á gólfi.
Eldhúsið er bjart með snyrtilegri ljósri innréttingu og eldhúskrók, parket á gólfi.
Stofa og borðstofa með fallegri rennihurð sem aðskilur þær. Önnur þeirra er í dag nýtt sem svefnherbergi. Rúmgóðar og bjartar. Parket á gólfum.
Hjónaherbergið er án skápa og með parketi á gólfi.
Baðherbergið er flísalagt með salerni og sturtu.
Sameiginlegt þvottahús í kjallara.

Í kjallara er 17,1 fm íbúðarherbergi sem getur nýst til útleigu, 8,2 fm eldhús og 4,6 fm baðherbergi.
Sameiginlegur skjólgóður garður er við húsið. Hjólageymsla í læstum undirgangi við húsið.

Viðhaldssaga:
2004: Endurnýjun skólplagna í kjallaragólfi hússins. Lagnir endurnýjaðar í plast út fyrir hús.
2011 : Nýjar svalir teiknaðar og samþykktar fyrir ris og 2. hæð.
2012: Endurnýjað rör í vegg við baðherbergi kjallaraíbúðar. Skolpstammi hússins var myndaður ca. 2021 og var í lagi. Málun utanhúss: steinveggir, gluggar, hurðir, þak - Skipt um glugga í hjólageymslu garðmegin - Nýr öryggissílender settur í útidyrahurð - Rennur og niðurföll endurnýjuð.
2022: Nýr gluggi settur í eldhús kjallaraíbúðar.
2023: Túnþökum skipt út í garði. Trjáfellingar og almenn garðvinna, t.d. ný mold í beð.
2024: Línolíumdúkur í stigagangi djúphreinsaður.
2025: Skipt út þrýstijöfnurum í hitaveituinntaki og hitaveitugrindin yfirfarin.
2026 Utanhússviðgerðir á múr garðmegin. Málari býr sig undir að mála glugga að utan garðmegin.
Það stendur síðan til að fara í rennuskipti garðmegin næsta sumar.

Nánari upplýsingar veita:
Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali í síma 867-0968 eða unnar@eignamidlun.is
Kjartan Hallgeirsson, löggiltur fasteignasali í síma 824-9093 eða kjartan@eignamidlun.is


 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (30)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Borgartún 24A 213
Borgartún 24A 213
105 Reykjavík
79,8 m2
Fjölbýlishús
312
1001 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg íbúð 316
Hleðslustöð
Opið hús:18. okt. kl 14:00-14:30
Laugaborg íbúð 316
105 Reykjavík
94,1 m2
Fjölbýlishús
312
1004 þ.kr./m2
94.500.000 kr.
Skoða eignina Grandavegur 42C
Diddi_vefur (71).jpg
Skoða eignina Grandavegur 42C
Grandavegur 42C
107 Reykjavík
76 m2
Fjölbýlishús
211
947 þ.kr./m2
72.000.000 kr.
Skoða eignina Mávahlíð 26
Efsta hæð
Skoða eignina Mávahlíð 26
Mávahlíð 26
105 Reykjavík
98,3 m2
Fjölbýlishús
413
799 þ.kr./m2
78.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin