Fasteignasalan TORG kynnir: Rúmgóð og björt endaíbúð á fimmtu hæð með fallegu útsýni við 17. Júnítorg í Garðabæ. Eignin er skráð 122,5 fm og skiptist í forstofu, sjónvarpshol, svefnherbergi, stofu/borðstofu, baðherbergi, þvottahús og geymslu í kjallara. Úr stofu er gengið út á 6,2 fm svalir. Eigninni fylgir bílastæði í lokuðum bílakjallara. Lyfta er í húsinu. Kvöð er í húsinu um að íbúar séu 50 ára eða eldri. Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma: 767-0000 eða með tölvupósti: darri@fstorg.is
Nánari lýsing: Gengið er inn í rúmgóða forstofu með fataskáp sem nær alveg upp í loft. Frá forstofu er svo gengið inn í sjónvarpshol og þaðan inn í rúmgóða setustofu og borðstofu. Stofan er mjög björt og með fallegu útsýni. Gengið er inn í eldhúsið frá stofunni. Eldhúsið er með fallegri ljósri viðarinnréttingu sem nær alveg upp í loft. Helluborð, bakaraofn, ísskápur og uppþvottavél fylgja. Góður útsýnisgluggi er frá eldhúsi að svölum en gengið er út á svalir frá stofu. Svefnherbergið er nokkuð rúmgott og með fataskáp sem nær alveg upp í loft. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, með ljósri viðarinnréttingu með handlaug spegla skápum. Sturtan er með góðu aðgengi en hún er stúkuð af með hertu gleri sem opnast vel. Þvottaherbergi er innan íbúðar með flísum á gólfi og veggfestum hillum. Í kjallara er 11 fm sérgeymsla íbúðar ásamt sameiginlegri vagna- og hjólageymslu. Bílastæði íbúðar er í lokuðum bílakjallara, merkt B044.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.