Fasteignaleitin
Opið hús:15. júlí kl 16:30-17:15
Skráð 10. júlí 2026

Kuggavogur 26

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
88.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
83.900.000 kr.
Fermetraverð
946.953 kr./m2
Fasteignamat
76.650.000 kr.
Brunabótamat
70.820.000 kr.
Mynd af Sigrún Gréta Helgadóttir
Sigrún Gréta Helgadóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2522350
Landnúmer
105612
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
04
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
Upprunalegt (byggt 2023).
Raflagnir
Upprunalegt (byggt 2023).
Frárennslislagnir
Upprunalegt (byggt 2023).
Gluggar / Gler
Upprunalegt (byggt 2023).
Þak
Upprunalegt (byggt 2023).
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
SA-svalir.
Upphitun
Hitaveita.
Inngangur
Sameiginlegur
Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir 3ja herb. enda íbúð á 4. hæð að Kugguvogi 26 í Reykjavík. Íbúðinni fylgir sér merkt stæði í lokuðum bílakjallara með uppsettri rafhleðslustöð. Ekkert íbúðarrými er fyrir ofan þessa íbúð sem veitir aukið næði og ró. Lyfta er í húsinu og rúmgóðir stigagangar. Svalir eru út frá stofu og þar nýtur sólar við frá morgni og inn í daginn. Útsýni er til austurs í átt að yfir í Grafarvoginn og að Úlfarsfelli og Móskarðshnúkum. Aukin lofthæð er í íbúðinni. Utan á liggjandi fallegar gardínur í stofu og herbergjum geta fylgt. Virkilega fallega innréttuð íbúð með HTH innréttingum, gólfefnum frá Álfaborg og AEG tækjum. Rafmagnshleðslustöð er í stæði í bílageymslu.
Göngubrú með lyftu er yfir Sæbraut og hraðatakmarkanir eru í götunum í hverfinu. Flottir hjóla- og göngustígar eru í og við hverfið sem leiða mann m.a. í náttúruparadísina í Elliðaárdalnum og Laugardalnum.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is 

Eignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, eldhús, stofu, baðherbergi og geymslu. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 88,6 m2. Stæði í bílageymslu er fyrir utan uppgefna fermetra.


*VINSAMLEGA SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR UM EIGNINA

**HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI. KÍKTU Í HEIMSÓKN!

Smelltu hér og þú færð söluyfirlit strax

Nánari lýsing:
Forstofa
 er inn af teppalagðri sameign með lyftu. Vítt er til veggja í sameign og er hægt að hafa lokaða hurð að þessari og annarri íbúð innan sameignar. Inni í íbúð er komið inn á parketlagt holl. Hvít innrétting á gangi er fyrir yfirhafnir.
Stofa og borðstofa eru í opnu rými með eldhúsi. Vegna endaíbúðarinnar eru gluggar á tveimur hliðum sem fylla íbúðina af náttúrulegri birtu. Aukin lofthæð í allri íbúðinni gerir rýmin enn rúmbetri og glæsilegri. Úr stofu er gengið út á um 4,8 m2 suðaustursvalir með fallegu útsýni yfir Grafarvog, Úlfarsfell og Mosfellsheiði. Á svölunum nýtur morgunsólar og birtu langt fram eftir degi.
Eldhús er með vandaðri hvítri HTH innréttingu þar sem efri skápar eru viðarlitaðir. Borðplatan er úr Silestone kvartssteini með undirlímdum vaski. Innbyggð AEG uppþvottavél, ísskápur og frystir fylgja ásamt AEG ofni, helluborði og háfi.
Herbergi I er rúmgott með fjórföldum fataskáp sem nær upp í loft. Frá herberginu er fallegt útsýni til austurs yfir Grafarvog og til fjalla.
Herbergi II er einnig rúmgott með innbyggðum þreföldum fataskáp og sama fallega útsýni.
Baðherbergi er flísalagt á veggjum og gólfi með rúmgóðri þröskuldslausri sturtu með hertu gleri. Falleg baðinnrétting með svartri borðplötu, vegghengt salerni, handklæðaofn og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er sér í sameign á jarðhæð.Skráð 7,6 m2 (merkt 0016).
Bílageymsla er lokuð og fylgir eigninni sérmerkt bílastæði með uppsettri rafhleðslustöð.
Í sameign eru hjóla- og vagnageymsla ásamt snyrtilegum og rúmgóðum sameignarrýmum. Húsið býður einnig upp á fallegan sameiginlegan garð sem er staðsettur ofan á bílakjallaranum. Garðurinn er skjólgóður, lokaður af frá umferð og býður upp á notalegt útisvæði fyrir íbúa hússins.

Sérsaumaðar gardínur frá Euro Blinds, hannaðar sérstaklega fyrir íbúðina, geta fylgt með samkvæmt samkomulagi.

Húsið
Húsið var byggt árið 2023 af Stofnhúsum og einkennist af vönduðum frágangi og góðu efnisvali. Innréttingar eru frá HTH, eldhústæki frá AEG, gólfefni frá Álfaborg og borðplötur úr Silestone kvartssteini. Ál/tré gluggar og vandaður frágangur gera húsið bæði endingargott og viðhaldslítið.

Staðsetning
Kuggavogur er í hjarta Vogabyggðar, eins mest spennandi nýbyggingahverfis Reykjavíkur. Stutt er í leik- og grunnskóla, verslanir, þjónustu og veitingastaði.
Göngubrú yfir Sæbraut tengir hverfið við Laugardal og þaðan eru bæði Laugardalur og Elliðaárdalur í þægilegu göngufæri. Frábærar göngu- og hjólaleiðir liggja um hverfið og meðfram strandlengjunni.

Helstu kostir
  • Endaíbúð á 4. hæð.
  • Engin íbúð fyrir ofan.
  • Byggt árið 2023.
  • Aukin lofthæð í allri íbúðinni.
  • Bjart alrými með gluggum á tveimur hliðum.
  • Opið útsýni yfir Grafarvog, Úlfarsfell og Mosfellsheiði.
  • Um 4,8 fm suðaustursvalir.
  • Vandaðar HTH innréttingar.
  • AEG eldhústæki.
  • Silestone kvartsborðplata.
  • Sérsaumaðar gardínur frá Euro Blinds.
  • Sérmerkt bílastæði í lokuðum bílakjallara.
  • Uppsett rafhleðslustöð við bílastæðið.
  • 7,6 fm sérgeymsla.
  • Lyfta frá bílakjallara upp á allar hæðir.
  • Hjóla- og vagnageymsla í sameign.
  • Skjólgóður sameiginlegur garður eingöngu fyrir íbúa hússins.

Áætlað fasteignamat árið 2027: 76.750.000 kr.

-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
19/07/202368.150.000 kr.75.500.000 kr.88.6 m2852.144 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2023
Fasteignanúmer
2522350
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B0
Númer eignar
7
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.770.000 kr.

Myndir (46)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laugaborg 0326
Laugaborg 0326 - Nyr afangi.jpg
Skoða eignina Laugaborg 0326
Laugaborg 0326
105 Reykjavík
81.7 m2
Fjölbýlishús
312
1015 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Mjóahlíð 10
Diddi_vefur (3).jpg
Skoða eignina Mjóahlíð 10
Mjóahlíð 10
105 Reykjavík
103 m2
Fjölbýlishús
413
873 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Stigahlíð 10
Skoða eignina Stigahlíð 10
Stigahlíð 10
105 Reykjavík
83 m2
Fjölbýlishús
312
842 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Skipholt 1
Skoða eignina Skipholt 1
Skipholt 1
105 Reykjavík
97.5 m2
Fjölbýlishús
312
922 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin