Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
LÝSING:
Kaupstaður fasteignasala kynnir til sölu mjög vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 3. hæð að Hverafold 19. Gott útsýni í allar áttir, stutt í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, íþróttir og góðar gönguleiðir. Snyrtileg eign á góðum stað í Grafarvogi.
Seljandi tekur á sig gluggaskipti. Þær framkvæmdir sem hafa verið samþykktar af húsfélaginu nú þegar tekur seljandi á sig.
Nánari lýsing:
Forstofa: parket á gólfi.
Eldhús: með hvítri u-laga innréttingu og parketi á gólfi.
Stofa/borðstofa: björt og rúmgóð með parketi á gólfi, góðum gluggum og útgengi á yfirbyggðar svalir.
Hjónaherbergi: bjart með góðum skápum, glugga og parketi á gólfi.
Herbergi: bjart með skáp, glugga og parketi á gólfi.
Baðherbergi: flísar á gólfi og veggjum, með baði, sturtu og hvítri innréttingu.
Þvottaherbergi: Flísar á gólfi.
Svalir: Eru yfirbyggðar (opnanlegar að hluta) og snúa til vesturs. Flísar á gólfi.
Geymsla: Í sameign.
Innifalið í sameign: er hjólageymsla/vagnageymsla og geymsla
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
---|---|---|---|---|---|
20/11/2007 | 17.110.000 kr. | 22.000.000 kr. | 93.4 m2 | 235.546 kr. | Já |
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
112 | 81.5 | 62,9 | ||
112 | 96.1 | 67,5 | ||
170 | 80.3 | 67,9 | ||
105 | 77.3 | 64,9 | ||
110 | 79.7 | 65 |