ALLT fasteignasala sími
560-5500 kynnir nýbyggingu Víðigerði 25, parhús með þremur svefnherbergjum ásamt innangengnum bílskúr. Sólpallur í suður. Byggingaverktaki er HK Verk ehf. Byggingastjóri Hilmar Knútsson. Eignin er skráð sem hér segir hjá FMR, birt stærð 120,8 fm.
Möguleiki að fá eignina afhenda fullgerða eftir nánara samkomulagi milli aðila.Nánari upplýsingar veitir Páll Þorbjörnsson lgf í síma 560-5501 eða á netfanginu pall@allt.isBirt stærð 120.8 fm. Skiptist í forstofu, stofu og eldhús í opnu rými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og þurkara, gert er líka ráð fyrir því að hægt er að vera með þvottahús í bílskúr sbr lagnir. Bílskúr með epoxy á gólfi.
Eignin skilast full kláruð að utan, klædd með báruklæðningu litur Ral 7009. Að innan skilast eignin tilbúin til innréttinga sbr skilalýsinngu. Eftir er að mála og sparsla, innréttingar og lokafrágangur á rafmagni. Rafmagnið ídregið í tengla og dósir samkvæmt teikningum, þó án innlagnaefnis.
Fasteignasali bendir einnig á vef Grindavíkurbæjar fyrir ýtarlegri teikninga og skipulag svæðis. Skipulagsgjald sem er 0,3% af brunabótamati verður lagt á þegar brunabótamat hefur náðst.
Svæðið við Víðihlíð er ætlað 55.ára og eldri skv skipulagi.
Fyrir bókun á viðtalstíma og skoðun:
Páll Þorbjörnsson
Löggiltur fasteignasali
S: 560-5501
Netfang: pall@allt.isVertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.