FS fasteignir – 571-9992Öldugata 25, 621 ÁrskógsandurMjög falleg og mikið endurnýjuð 80,8m
2 þriggja herbergja endaraðhús á einni hæð með fallegu útsýni og skemmtilegri útiaðstöðu með heitum pott.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Á baklóð er rúmgóður geymsluskúr og gróðurhús.
Forstofa: Flísar á gólfi og stór fataskápur.
Eldhús: Nýleg hvít og svört innrétting með flísum á milli skápa. Uppþvottavél fylgir með við sölu eignar.
Stofa/borðstofa og eldhús eru í opnu rými. Þar er hvíttað plastparket á gólfi, loft tekin upp og hurð til suðurs út á timbur verönd.
Svefnherbergin eru tvö, bæði rúmgóð og með hvíttuðu plastparketi á gólfi. Fataskápar í báðum herbergjum.
Baðherbergi er nýlega endurnýjað með flísum á gólfi og hluta af veggjum, hvít innrétting, upphengt salerni, sturta, innrétting fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Opnanlegur gluggi.
Geymsluskúr er mjög rúmgóður með hita og rafmagni, við suðurvegg skúrsins stendur gróðurhús.
Viðarpallur með viðarskjólveggjum, einnig er annar viðarpallur við geymsluskúr með heitum og köldum pott þar er einnig útisturta.
Annað- Búið að skipta um gler í öllum gluggum.
- Skipt um rafmagnsdósir og tengla.
- Geymsluloft er yfir íbúð.
- Ekkert húsfélag er starfandi í húsinu.
Nánari upplýsingar í síma 571-9992 eða fsfasteignir@fsfasteignir.isSkoðunarskylda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. FS fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
FS fasteignir ehf. - Glerárgata 36, 3. hæð - 571-9992 - www.fsfasteignir.is
Friðrik Sigþórsson, löggiltur fasteignasali, s: 694-4220, fridrik@fsfasteignir.is
Svala Jónsdóttir, löggiltur fasteignasali, s: 663-5260, svala@fsfasteignir.is
Sigurpáll Gunnarsson, nemi til löggildingar fasteignasala, s: 618-6126, sigurpall@fsfasteignir.is
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá verðmat og ráðgjöf.
Fylgstu með nýjustu eignunum til sölu hjá okkur á facebook og instagram.