Fasteignaleitin
Skráð 22. jan. 2026

Gunnarsbraut 47

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
84.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
62.900.000 kr.
Fermetraverð
745.261 kr./m2
Fasteignamat
58.450.000 kr.
Brunabótamat
40.750.000 kr.
Mynd af Marta Jónsdóttir
Marta Jónsdóttir
Lögfræðingur
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2012259
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
00
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjaðar frá lagnagrind
Raflagnir
Gott. Endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
Myndaðar nýlega. Ekki ástæða til framkvæmda
Gluggar / Gler
Ekki vitað um vandamál
Þak
Þakjárn þarfnast endurnýjunar, sjá yfirlýsingu húsfélags
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Gott. Endurnýjað að hluta
Inngangur
Sérinngangur
Sunna fasteignasala og Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., kynna Gunnarsbraut 47, 105 Reykjavík. 

Um er að ræða mikið endurnýjaða og snyrtilega 3ja herbergja íbúð á jarðhæð í Norðurmýrinni. Eignin er með sér inngang, góðri geymslu og þvottahúsi á sömu hæð. Frábær fyrstu kaup.


Helstu endurbætur á undanförnum árum:
• Gólf hafa verið flotuð og vínylparket lagt.
• Skipt hefur verið um ofna og ofnalagnir í allri íbúðinni frá inntaksrými og eru lagnir lagðar utanáliggjandi.
• Smíðaður hefur verið stokkur yfir lagnir meðfram gólfi á flestum stöðum íbúðarinnar (þó ekki á baði eða eldhúsi).
• Nýr handklæðaofn á baði 
• Jafnhliða nýjum vatnslögnum í eldhús og bað, sem lagðar hafa verið í gólf í ídráttarrörum hefur verið skipt út tækjum á baði og sturtuklefi verið settur upp. Þá hefur einnig verið sett upp nýtt 24/7 útsog frá baðherbergi.
• Raflagnir hafa verið lagfærðar að stærstum hluta. Þar með talið brotið fyrir nýjum dósum fyrir tölvulagnir og gömlum járndósum skipt út fyrir plastdósir.
• Nýir tenglar og rofar í allri íbúðinni.
• Fallegir gólf- og loftlistar eru í íbúðinni.

Nánari lýsing: 
Komið er inn í forstofu með nýlegu vínylparketi. Á hægri hönd er eldhúsið með snyrtilegri hvítri innréttingu og plastlagðri borðplötu. Gluggi er í eldhúsi. 
Á vinstri hönd við forstofu eru tvær stórar samliggjandi stofur með stórum gluggum sem hleypa mikilli birtu inn. Við enda þeirra er svefnherbergi, það er rúmgott og með glugga á tvenna vegu. 
Úr stofu er gengið inn gang, á vinstri hönd eru tvennar hurðar, önnur er að góðri geymslu og hin að sameiginlegu inntaksrými/þvottaherbergi. Þvottaherbergið er eingöngu í notkun fyrir þessa íbúð í dag. 
Innar á ganginum er mjög rúmgott svefnherbergi með stórum gluggum.

Í eigninni er tvöfalt verksmiðjugler.
Mjög snyrtileg sameiginleg hjólageymsla og góður sameiginlegur garður. 

Þettta er falleg og björt íbúð sem hefur verið talsvert endurnýjuð. Hún er staðsett í fjölskylduvænu hverfi í örstuttu göngufæri við Landspítalann, leikskóla og grunnskóla, auk þess er stutt á útivistarsvæði en Klambratún er í næsta nágrenni. Þá er miðbær Reykjavíkur í göngufæri.

Nánari upplýsingar veitir Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs. í síma 8633445 og netfanginu marta@sunnafast.is.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
17/02/201418.400.000 kr.24.200.000 kr.84.4 m2286.729 kr.
28/02/200716.490.000 kr.18.200.000 kr.84.4 m2215.639 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (19)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hringhamar 17 (202)
Bílastæði
Opið hús:15. mars kl 13:30-14:00
Hringhamar 17 (202)
221 Hafnarfjörður
96 m2
Fjölbýlishús
312
822 þ.kr./m2
78.900.000 kr.
Skoða eignina Mýrargata 41(Vesturvin 1) íb 210
móa_vefur (15).jpg
Mýrargata 41(Vesturvin 1) íb 210
101 Reykjavík
112.3 m2
Fjölbýlishús
32
970 þ.kr./m2
108.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 19 (602)
Bílastæði
Hringhamar 19 (602)
221 Hafnarfjörður
98.3 m2
Fjölbýlishús
413
833 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 17 (201)
Hringhamar 17 (201)
221 Hafnarfjörður
58.8 m2
Fjölbýlishús
211
995 þ.kr./m2
58.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin