FS fasteignir – 571-9992Múlasíða 14, 603 AkureyriMjög snyrtilegt og skemmtilegt 4 herbergja 161,2m
2 enda íbúð í raðhúsi á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr. Góðir timburpallar við hús, rúmgóður geymsluskúr á lóð.
Eignin skiptist í:Neðri hæð 95,2m
2 forstofa, eldhús, stofa, borðstofa, snyrting, Þvottahús/ sem er á tengigangi milli bílsskúrs og forstofu en þar eru fataskápar en tengi er fyrir þvottavél sem er staðsett í bílskúr í dag, bílskúr/þvottaaðstaða( í hluta af bílskúr hefur verið útbúið herbergi)
Efri hæð 66 m
2 þrjú svefnherbergi, sjónvarpshol og baðherbergi.
Forstofa flísar á gólfi.
Eldhús hvít innrétting með flísum milli skápa, flísar á gólfi. Tveir gluggar eru í eldhúsi.
Stofa/borðstofa parket á gólfi, út úr stofu er hurð út á timbur verönd með timbur skjólveggjum.
Snyrting flísar á gólfi, stór hvítur skápur.
Þvottahús sem er á tengigangi milli bílskúrs og forstfu, rúmgóður skápur, nýtist ekki sem þvottahús í dag en tengi er fyrir þvottavél. Opnanlegur gluggi er í þvottahúsi.
Bílskúr/ aðstaða fyrir þvottavél, innangengt er úr þvottahúsi, þar hefur verið stúkað af fyrir herbergi í enda bílskúrs þar er útgönguhurð út á pall.
Stigi milli hæða er timbur parket er á stiga. Flottur gluggi er við stiga. Undir stiga er pláss sem nýtist sem skrifstofuaðstaða í dag með glugga.
Hol bjart og rúmgott með parket á gólfi,
Herbergin eru þrjú harðparket á gólfum og skápar. ( Einnig hefur verið útbúið herbergi í bílskúr með hurð út í garð)
Baðherbergi með flísum á gólfi og hluta af veggjum, sturta og baðkar. Opnanlegur þakgluggi.
Pallar eru tveir út úr stofu og fyrir framan hús, úr timbri með timburskjólveggjum.
Garðskúr er við enda hússins.
Annað:- Viðauki við eignakiptayfirlýsingu var gerð árið 2023 sem er svohljóðandi: Sú breyting er gerð frá þinglýstri eignaskiptayfirlýsingu er að sérnotafletir endaíbúða stækka en áður voru lóðir við stafna hússins talin í óskiptri sameign.
- Skipt var um gler í öllu húsinu og plastlistar settir meðfram úti.
- Þakkantur endurnýjaður fyrir framan hús og hitaþráður settur í rennur þar árið 2022.
- Hiti í stétt framan við útidyrahurð.
- Tengi fyrir hleðslustöð við bílskúrinn.
- Hús málað að utan 2022.
- Möguleiki er að breyta sjónvarpsholi á efri hæð í svefnherbergi.
- Geymslupláss undir súð í hjónaherbergi og í sjónvarpsholi á efri hæðinni.
- Falleg lóð.
- Fallegt útsýni.
Nánari upplýsingar í síma 571-9992 eða fsfasteignir@fsfasteignir.isSkoðunarskylda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. FS fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
FS fasteignir ehf. - Glerárgata 36, 3. hæð - 571-9992 - www.fsfasteignir.is
Friðrik Sigþórsson, löggiltur fasteignasali, s: 694-4220, fridrik@fsfasteignir.is
Svala Jónsdóttir, löggiltur fasteignasali, s: 663-5260, svala@fsfasteignir.is
Sigurpáll Gunnarsson, nemi til löggildingar fasteignasala, s: 618-6126, sigurpall@fsfasteignir.is
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá verðmat og ráðgjöf.
Fylgstu með nýjustu eignunum til sölu hjá okkur á facebook og instagram.