Fasteignasalan TORG kynnir fallega og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á fjórðu og efstu hæð með stæði í bílageymslu og svölum í suðvestur með fallegu útsýni.
Eignin er alls 90,5 fm að stærð, þar af er 12,5 fm sérgeymsla. Íbúðin skiptist í anddyri, baðherbergi/þvottahús, tvö svefnherbergi, aðalrými með eldhúsi, stofu og útgengi út á svalir til suð-vesturs.Frekari upplýsingar og bókun skoðunar veita Sunna Sigurjónsdóttir, lögg. fasteignasali í GSM: 845-0517 eða sunna@fstorg.is og Elka Guðmundsdóttir, lögg. fasteignasali í GSM: 863-8813 eða elka@fstorg.isNánari lýsing:Forstofa: Með góðu skápaplássi.
Svefnherbergi 1: Rúmgott herbergi með fataskáp.
Svefnherbergi 2: Rúmgott herbergi með fataskáp.
Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð stofa/borðstofa með útgengt á svalir til suð-vesturs.
Eldhús: Falleg, hvít innrétting frá GKS með eyju, innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja.
Baðherbergi/þvottaherbergi: Hvít innrétting, upphengt salerni, "walk in" sturta, handklæðaofn, flísar á gólfi og á veggjum inni í sturtu.
Geymsla: Sér 12,5 fm geymsla á jarðhæð
*Áætlað fasteignamat ársins 2025 er kr. 77.900.000.// Harðparket á öllum rýmum nema baðherbergi/þvottaherbergi// Sérsmíðaðar innréttingar frá GKS
// Aukin lofthæð
// Bílastæði: Sérmerkt bílastæði í upphituðu bílastæðahúsi, lagnir tilbúnar fyrir rafhleðslustöð
// Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í sameign
// Göngufæri við leik- og grunnskóla
// Vinastræti 2-16 er byggt af ÞG verktökum. Húsin eru álklædd og einangruð að utan. Öll sameign og aðkoma að húsinu er hin snyrtilegasta.Urriðaholtið er frábærlega staðsett, óspillt náttúra allt í kringum hverfið, stutt í skóla og verslanir í Kauptúni. Örstutt er niður á Reykjanesbraut og þar með umferðaræðar höfuðborgarsvæðisins.
*Eigandi fasteignarinnar hefur venslatengsl við fasteignasala hjá TORG fasteignasölu.Frekari upplýsingar og bókun skoðunar veita Sunna Sigurjónsdóttir, lögg. fasteignasali í GSM: 845-0517 eða sunna@fstorg.is og Elka Guðmundsdóttir, lögg. fasteignasali í GSM: 863-8813 eða elka@fstorg.isTorg fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,4- 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- . Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.