Fasteignaleitin
Skráð 18. nóv. 2025
Deila eign
Deila

Þingvallastræti 25

EinbýlishúsNorðurland/Akureyri-600
346.4 m2
10 Herb.
6 Svefnh.
4 Baðherb.
Verð
195.000.000 kr.
Fermetraverð
562.933 kr./m2
Fasteignamat
108.500.000 kr.
Brunabótamat
130.340.000 kr.
GT
Guðmundur Th. Jónsson
Lögg. fasteiganasali
Byggt 1936
Þvottahús
Geymsla 28m2
Garður
Bílskúr
Útsýni
Gæludýr leyfð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2151865
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Ástand ekki vitað
Raflagnir
Endurnýjaðar að hluta
Frárennslislagnir
Ástand ekki vitað
Gluggar / Gler
Tvöfalt og mixað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Vestursvalir
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega glæsilegt og afar virðulegt 346,4 fermetra einbýlishús á þremur hæðum á 1.391,3 fermetra gróinni og ræktaðri lóð á einstökum stað við Þingvallastræti á Akureyri.  Aukaíbúð í kjallara hússins, sem bæði er með sérinngangi og innangengt er í.  Gestaíbúð hefur verið útbúin í bílskúr hússins.  Húsið er allt nýmálað að utan.

Bókið einkatíma fyrir skoðun eignarinnar á netfanginu fastmark@fastmark.is 

Fyrirhugað fasteignamat eignarinnar fyrir árið 2026 er kr. 117.350.000.-


Hér er um að ræða afar glæsilegt einbýlishús á þremur hæðum sem stendur á mjög stórri lóð á frábærum stað, miðsvæðis á Akureyri.
Um er að ræða einstaka hönnunarperlu eftir Sigurð Guðmundsson arkitekt (1885-1958). Húsið sameinar á látlausan hátt klassíska húsagerðarlist og Bauhaus stefnu 20. aldar. Byggingarár 1936.

Aðalinngangur í húsið er á miðhæð þess.  Á þeirri hæð eru m.a. tvær samliggjandi mjög rúmgóðar og bjartar stofur með útgengi á verönd til suðurs. Rúmgott og bjart eldhús er á hæðinni, stigahol og gestasnyrting. Aukin lofthæð er á aðalhæð hússins. Nýjar, sérsmíðaðar bókahillur.

Á efri hæð hússins eru stórt baðherbergi með hornbaðkari, stórt hjónaherbergi með fataherbergi innaf með miklu skápaplássi. Á hæðinni eru einnig tvö barnaherbergi, annað mjög stórt, auk þess sem sturtuherbergi er á hæðinni. Aukin lofthæð er á efri hæð hússins.  

Í kjallara hússins er sér 2ja herbergja íbúð sem bæði er innangengt í og með sérinngangi frá götu. Íbúðin skiptist í stofu, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi. Auk þess eru í kjallara geymsla og gufubað.

Bílskúr á lóðinni, sem er 53,6 fermetrar að stærð, var nýlega innréttaður sem gestaíbúð og er í góðu ástandi.

Húsið hefur verið þó nokkuð endurnýjað á undanförnum árum:
Meðal annars hefur verið útbúin gestaíbúð í bílskúr, sett nýtt eldhús í aukaíbúð í kjallara hússins auk nýs baðherbergis og hluta gólfefna. 
Sett var upp gufubað í kjallara árið 2014.
Allar frárennslislagnir voru endurnýjaðar árið 2012.
Gler í húsinu var endurnýjað eins og þurfti árið 2022
Húsið er nýmálað að utan og að hluta nýlega málað að innan. 


Lóðin er 1390,0 fermetrar að stærð með stórum sólpalli sunnan megin við húsið. Grenitrjám hefur verið plantað allt í kringum húsið sem munu innan fárra ára mynda skjólvegg allt í kringum húsið. Sjón er sögu ríkari.

Um húsið: 
Þingvallastræti 25 er tvílyft steinsteypuhús með lágu valmaþaki og á lágum kjallara. Það er undir áhrifum frá fúnkísstefnu, nánast ferningslaga á grunnfleti en þó nokkuð óhefðbundið útlits, gluggasetning ekki eins fastskorðuð og oft var á funkishúsum t.d. við Helgamagrastræti og Ægisgötu. Stórir og sérstæðir gluggar og bogadreginn dyraumbúnaður gefur húsinu sinn sérstaka svip. Húsið er klætt grjótmulningi. Á austurhluta lóðar stendur bílskúr. Umhverfi hússins ber þess merki að það er reist í þáverandi dreifbýli, en lóðin er geysi víðlend og mikið stærri en næstu lóðir. Ekki var farið að byggja að ráði í næsta nágrenni hússins fyrr en árin um og eftir 1950.
 
Allar nánari upplýsingar og tímapantanir á skoðun eignarinnar er að fá á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
06/07/201232.800.000 kr.51.500.000 kr.346.4 m2148.672 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Byggt 1943
25.6 m2
Fasteignanúmer
2151865
Byggingarefni
Holsteinn
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.340.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Byggt 1943
28 m2
Fasteignanúmer
2151865
Byggingarefni
Holsteinn
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.500.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Þórunnarstræti 93
Þórunnarstræti 93
600 Akureyri
302.4 m2
Einbýlishús
11811
700 þ.kr./m2
211.700.000 kr.
Skoða eignina Þingvallastræti 25
Bílskúr
Þingvallastræti 25
600 Akureyri
346.4 m2
Einbýlishús
1036
563 þ.kr./m2
195.000.000 kr.
Skoða eignina Gásir II
Bílskúr
Skoða eignina Gásir II
Gásir II
604 Akureyri
330.4 m2
Einbýlishús
625
575 þ.kr./m2
190.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin