Prima fasteignasala og Oscar Clausen lgf. kynna eignina Asparholt 6, 225 Garðabær, Falleg og rúmgóð 116,8 fm endaíbúð á efstu hæð við Asparholt 6 – Draumaeign fyrir fjölskylduna á Álftanesi!
Hér er um að ræða sérlega vel skipulagða, bjarta og rúmgóða 116,8 fm 4ra-5 herbergja endaíbúð á efstu hæð á þessum vinsæla og fjölskylduvæna stað. Eignin státar af glæsilegu útsýni til sjávar og fjalla, vönduðum sérsmíðuðum innréttingum og frábæru skipulagi þar sem stutt er í öll helstu þjónustu, skóla og frístundir.
Glæsilegt útsýni: Svalir í norð-vestur með einstöku útsýni til sjávar og fjalla.
Fjölskylduvænt skipulag: Þrjú rúmgóð svefnherbergi og sérgeymsla með glugga sem hægt er að nýta sem fjórða svefnherbergið.
Vandaðar innréttingar: Íslensk sérsmíði frá Fagus í eldhúsi, sérsmíðuð Brúnás innrétting í þvottahúsi og gæða Pergo parket á gólfum.
Bílastæði og hleðslumöguleikar: Tveimur þinglýstum sérmerktum bílastæðum fylgir íbúðinni – öðru þeirra fylgir rafmagn í staur sem er tilbúið fyrir uppsetningu hleðslustöðvar.
Staðsetning: Mögulegt að labba í skóla, leikskóla, sundlaug og íþróttasvæði án þess að fara yfir stórar götur.
Nánari lýsing:
Forstofa: Komið er inn í bjarta og snyrtilega forstofu með náttúruflísum á gólfi, góðum fataskáp og glugga sem hleypir fallegri dagsbirtu inn.
Opið alrými – Eldhús, stofa og borðstofa: Gengið er meðfram gangi inn í bjart og opið alrými með gluggum á tveimur hliðum.
Eldhúsið er vandað U-laga eldhús frá Fagus með helluborði í eyju, góðu vinnu- og borðplássi, bökunarofni í vinnuhæð,
Stofa og borðstofa mynda hlýlegan kjarna heimilisins. Þaðan er útgengt á notalegar svalir í norð-vestur þar sem hægt er að njóta stórbrotins útsýnis til sjávar og fjalla.
Svefnherbergi (3-4):
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott og bjart með góðum fataskápum.
Barnaherbergi: Barnaherbergin eru tvö með parketi á gólfi(annað þeirra með fataskáp
Baðherbergi: Aðgengilegt og smekklegt baðherbergi með dökkum náttúruflísum á gólfi og ljósum flísum á veggjum. Góð innrétting með skúffum, skápum og spegli. Hér er bæði baðkar og sér sturtuklefi, ásamt upphengdu salerni.
Sér þvottahús: Stórt og hentugt þvottahús er innan íbúðar með dökkum náttúruflísum á gólfi. Hvít sérsmíðuð Brúnás innrétting býður upp á vinnuhæð fyrir þvottavél og þurrkara ásamt góðu geymsluplássi.
Geymsla / 4. svefnherbergið: Gengið er beint úr forstofu inn í sérgeymslu sem er með flísalögðu gólfi og opnanlegum glugga. Vegna stærðar og gluggans nýtist þetta rými mjög vel sem fjórða svefnherbergið, vinnuherbergi eða leikherbergi fyrir börnin.).
Staðsetning og nærumhverfi:
Asparholt er staðsett á sérlega fjölskylduvænum, rólegum og öruggum stað á Álftanesi í Garðabæ. Hér er stutt í alla helstu þjónustu, en skóli, leikskóli, sundlaug, íþróttamannvirki og fallegar gönguleiðir meðfram fjörunni eru allt í næsta nágrenni. Ideal staður fyrir barnafjölskyldur!
Nánari upplýsingar veita:
Oscar Clausen löggiltur fasteignasali / s.8618466 / oc@primafasteignir.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Yfirlýsing seljanda:
Seljandi/eigandi lýsir því yfir að efni söluyfirlitsins er rétt samkvæmt bestu vitund hans og staðfestir það með undirritun sinni.