**OPIÐ HÚS 27.JANÚAR KL 12:00-13:00**
Móeiður Svala lögg. fasteignasali og Miklaborg kynna: Einstaka þakíbúð með heitum potti, tvennum þaksvölum, bílskúr + 2 stæði í bílakjallara á Héðinsreit.
**Íbúðin er laus við kaupsamning**
Fyrir allar nánari upplýsingar veitir Móeiður Svala lögg. fasteignasali í síma 899-8278 eða moa@miklaborg.is
Glæsileg, afar björt og vel skipulögð 3ja herbergja þakíbúð með mikilli lofthæð í vönduðu og viðhaldsléttu húsi við Mýrargötu 33 á Héðinsreit, á jaðri Vesturbæjar í 101 Reykjavík. Húsið er hannað af Arkþing/Nordic og innanhúshönnun íbúðar er frá Sæju.
Íbúðin býður upp á opið og bjart alrými með gólfsíðum gluggum, vönduðum Axis innréttingum, quartz borðplötum frá Granítsmíðjunni og fullbúnum Siemens eldhústækjum. Útgengt er á stórar suðursvalir með heitum potti, en úr stofu er gengið út á norðursvalir með stórbrotnu útsýni yfir Esjuna og hafið.
Hjónasvíta með sérbaðherbergi, auk annars svefnherbergis, glæsilegs aðalbaðherbergis og sér þvottahúss með stórum þakglugga. Gólfhiti er í allri íbúðinni með Danfoss stýrikerfi og parket á gólfum, nema á votrýmum sem eru flísalögð.
Birt stærð eignar er 150,0 m², þar af 101,2 m² íbúð, 27,6 m² bílskúr í bílakjallara og 21,2 m² sérgeymsla. Eigninni fylgja tvö sérmerkt bílastæði í bílakjallara.
Einstök þakíbúð þar sem vönduð hönnun, gæði og lúxus mætast á eftirsóttum stað í miðborg Reykjavíkur.
**Íbúðin er laus við kaupsamning**
Allar nánari upplýsingar veitir Móeiður Svala lögg. fasteignasali í síma 899-8278 eða moa@miklaborg.is
***ENGLISH***
Exclusive Penthouse Apartment with Roof Terraces, Hot Tub and Garage
An exceptional and beautifully designed penthouse apartment located at Mýrargata 33 in the prestigious Héðinsreitur area, on the edge of Reykjavík’s West Town. The apartment features high ceilings, floor-to-ceiling windows and a refined open-plan living space.
The property offers two roof terraces, one facing south with a private hot tub, and another facing north with stunning views of Mount Esja and the ocean. High-quality Axis cabinetry, quartz countertops from Granítsmíðjan and fully integrated Siemens appliances enhance the luxurious feel throughout.
The apartment includes a master suite with en-suite bathroom, an additional bedroom, a separate laundry room, underfloor heating and elegant finishes throughout. A private garage, two parking spaces and a spacious storage unit are included.
A truly unique penthouse combining design, comfort and location.
For all information contact Moeidur Svala Realtor. phone: +354 899 8278 or moa@miklaborg.is
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 01/06/2023 | 90.550.000 kr. | 144.900.000 kr. | 150 m2 | 966.000 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
101 | 160.7 | 149,9 | ||
101 | 141.4 | 155 | ||
101 | 183.9 | 174,5 | ||
101 | 129.6 | 147,9 | ||
101 | 119.8 | 155,9 |