Skráð 5. mars 2026

Borgahella 9K

Nýbygging • Atvinnuhúsn.Höfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
169.1 m2
Verð
69.000.000 kr.
Fermetraverð
408.043 kr./m2
Fasteignamat
5.810.000 kr.
Byggt 2025
Fasteignanúmer
2537178
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
11
Lóðarréttindi
Leigulóð
Matsstig
1 - Samþykkt
Valhöll kynnir til sölu eða leigu glæsilegt steypt atvinnuhúsnæði við Borgahellu 9K í Hafnarfirði. Mörg bílastæði. Svalir út frá hverju bili. Mikil lofthæð. Há innkeyrsluhurð. Mögulegt að gera ósamþykktar íbúðir á efri hæð.

Smellt hérna til að sjá myndband af eigninni.


Húsnæðið er til sölu en einnig er hægt að leigja það. Leiguverð fæst uppgefið hjá fasteignasala. VSK leggst ofan á leiguverð.

Um er að ræða bil merkt 0111. Bilið er 169,1 fm á stærð á tveimur hæðum. Neðri hæðin er skráð 84,5 fm á stærð og efri hæðin 84,6 fm. Fyrir framan bilið er 40 fm sérafnotaflötur undir bílastæði. Þá eru einnig opin bílastæði við lóðarmörk.

Húsnæðið er staðsteyp og selt á byggingarstigi 3 - fullgerð bygging að utan og tilbúið undir tréverk að innan. Eigninni skal skilað í samræmi við skilalýsingu seljanda. Lóð skilast fullkláruð. Athugið að lóðin verður ekki að fullu frágengin fyrr en sumarið 2026 þ.e. malbikun og uppsetning girðingar umhverfis lóðina.


Lofthæð á 1. hæð: 4,5 fm

Lofthæð á 2 hæð: 2,5 fm - 4,5 m

Lofthæð á innkeyrsluhurð: 4,20 m

Bilin er tilbúið til afhendingar. Bílaplanið verður malbikað sumarið 2026.

Nánari upplýsingar veitir:
Snorri Björn Sturluson löggiltur fasteignasali / lögfræðingur í síma 699-4407 eða snorribs@valholl.is

Nánari lýsing:

Frágangur iðnaðarbila:
Veggir: Allir veggir iðnaðarbilana eru slípaðir, grunnaðir og málaðir. Ekki verða settir upp neinir milliveggir nema á baðherberginu á 1 hæð. Léttur milliveggur á baðherbergi er grindaður með blikki og klæddur með OSB og gifsi. 
Gólfefni: Gólfið á 1 hæð er vélslípað. Gólfin á 2. hæð eru steypt og slödduð. Svalir eru glattaðar.
Loft: Steypt loft er slípað, grunnað og málað. Á 2. hæð eru stálbitar og sperrur, búið verður að ganga frá rakavarnarlaginu en ekki taka loftið niður. Lýsingin verður fest í sperrur, reiknað er með að kaupandi gangi endanlega frá lofti á 2. hæð.
Hurðir: EL-60 eldvarnar hurð frá Glófaxa á brunagangi, máluð í hvítum lit, RAL 9010. Aðrar innihurðir fylgja ekki. Bílskúrshurðir frá Vögnum og Þjónustu. Útidyrahurðir frá Strúktúr.
Baðherbergi: Á baðherbergi á 1. hæð er búið að koma fyrir upphengdu klósetti og vaski frá Grohe eða sambærilegu.
Hitakerfi: Iðnaðarbilin skilast með lagnagrind sem auðvelt er að bæta við. Lagnir eru samkvæmt teikningu. Einn iðnaðarblásari er í hverju rými til upphitunar. Reiknað er með ofnum á efri hæð sem kaupandi sér um að koma fyrir. 
Lýsing: Iðnaðarlampar á efri og neðri hæð. Út/Exit ljós ásamt neyðarlýsingu. Kubbaljós fyrir framan hvert bil. Kúpull á baðherbergi niðri.
Loftræsi-, vatns- og þrifalagnir: Loftræsting á baðherbergi niðri. Ásamt túðu á efri hæð.
Rafmagns og sjónvarpslagnir: Rafmagnstafla er tilbúin í hverju bili með 63 ampera 3 fasa tengli. Ljós og bílskúrhurðaropnari verða tengd. Fjarskiptakapall er komin í húsið við inntaksgrind.
Handrið: Handrið innanhúss er úr stáli, og duftlakkað í RAL 7016 lit.
Handrið utanhúss er úr heitgalvaniseruðu stáli duftlakkað í RAL7016.

Frágangur utanhúss:
Byggingin er að öllu leyti frágengin að utan.
Veggir utanhúss: Veggir eru staðsteyptir og einangraðir að utanverðu, klædd með smábáru. Sjá þrívíddarmyndir til glöggvunar á útliti.
Svalir: Svalagólf eru steypt. Svalahandrið er stál duftlakkað í RAL 7016. Útiljós og rafmagnstengill er á svölum. 
Gluggar og hurðir: Gluggar, svalahurðir og útidyrahurðir eru frá Strúktúr. Danskir gluggar, bæði hönnun og framleiðsla. Gluggar og hurðir eru úr álklæddu timbri. Opnanleg fög með barnalæsingu.
Bílskúr: Bílskúrshurðir eru frá Vögnum og Þjónustu og Hurðarskellir setti þær í.

Lóð:
Lóðarfrágangi lokið.
Malbikað plan með góðum niðurföllum.
Olíuskilja er á lóðinni svo leyfilegt er að þrífa bíla.
Sérmerktur afnotareitur.
Sameiginlegar sorpgeymslur.

Ath. að þrívíddarmyndir eru einungis til viðmiðunar en sýna ekki endilega endanlegt útlit. 

Nánari upplýsingar veitir:
Snorri Björn Sturluson löggiltur fasteignasali / lögfræðingur í síma 699-4407 eða snorribs@valholl.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.



 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Valhöll fasteignasala ehf.
http://valholl.is

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Borgahella 9B
Skoða eignina Borgahella 9B
Borgahella 9B
221 Hafnarfjörður
169.1 m2
Atvinnuhúsn.
408 þ.kr./m2
69.000.000 kr.
Skoða eignina Rauðhella 10
Skoða eignina Rauðhella 10
Rauðhella 10
221 Hafnarfjörður
148.1 m2
Atvinnuhúsn.
11
486 þ.kr./m2
72.000.000 kr.
Skoða eignina Dofrahella 5
Skoða eignina Dofrahella 5
Dofrahella 5
221 Hafnarfjörður
205.5 m2
Atvinnuhúsn.
336 þ.kr./m2
69.000.000 kr.
Skoða eignina Dofrahella 1
Skoða eignina Dofrahella 1
Dofrahella 1
221 Hafnarfjörður
205.7 m2
Atvinnuhúsn.
340 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin