Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega fallega, bjarta og þó nokkuð endurnýjaða 2ja herbergja 57,0 fermetra íbúð á 2. hæð ásamt tveimur geymslum í kjallara í góðu og eftirsóttu húsi með fjórum íbúðum á stigagangi á frábærum stað við Ásvallagötu í Vesturbæ Reykjavíkur.
Sameiginleg þvotthús og þurrkherbergi eru í kjallara og sameiginleg falleg lóð til suðurs þaðan sem gengið er út á opið svæði á milli húsa þar sem m.a. er leikvöllur fyrir börn.
Í húsinu starfar mjög öflugt húsfélag, Húsfélag alþýðu, sem heldur vel utan um allt almennt viðhald.
Lýsing eignar:
Inngangur, sameiginlegur og dúklagt stigahús.
Forstofa / gangur, flísalögð með fatahengi og fataskáp.
Eldhús, flísalagt og bjart með fallegum lökkuðum hvítum innréttingum, viðarborðplötu, viftu og eldavél.
Stofa, björt með epoxy gólfi.
Herbergi, rúmgott með epoxy gólfi og fataskáp.
Baðherbergi, með glugga, flísalagt gólf og hluti veggja, skápur og baðkar með sturtu.
Í kjallara hússins eru:
Sér geymslur, 8.8 og 4,1 fermetri að stærð og báðar með glugga.
Sameiginlegt þvottaherbergi, steingólf, sér tenglar fyrir hverja íbúð og með útgengi í garð.
Þurrkherbergi, rúmgott með glugga.
Húsið að utan lítur vel út og hefur alltaf hlotið gott viðhald og var þakjárn málað nýlega.
Lóðin er fullfrágengin og falleg. Sameiginlegur stór garður er til suðurs fyrir aftan húsið og gengið er út á lóðina í gegnum þvottaherbergi í kjallara.
Staðstetning eignarinnar er á vinsælum stað í Vesturbænum þaðan sem stutt er í leikskóla, barnaskóla, Háskóla Íslands, Sundlaug Vesturbæjar, íþróttasvæði KR, Melabúðina, Kaffi Vest og fleira.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga nr. 40/2002 um fasteignakaup. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Er því væntanlegum kaupendum bent á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.