Fasteignasala Austurlands kynnir fallegt einbýli með sólríkum bakgarði í rólegri botnlangagötu á Egilsstöðum.
- Gróinn, skjólsæll bakgarður
- Stórt hellulagt bílastæði
- Vel skipulagt einbýlishús
- Róleg gata & stutt í skóla/íþróttahús
Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // heimir@fastaust.isSólvellir 16, 700 Egilsstaðir: Um er að ræða 4ra herbergja, 113,5m
2 einbýli á einni hæð. Húsið er innst í botnlangagötu þar sem stutt er bæði í leik- og grunnskóla sem og íþróttamiðstöð/sundlaug. Bakgarðurinn er stór og gróinn, með timburverönd og honum fylgir 6m
2 kofi/geymsluskúr. Hellulagt bílastæði að framanverðu er stórt og gott.
Vel skipulagt fjölskylduhús á frábærum stað!Anddyri: Flísalagt gólf, þaðan er innangengt í þvottahús/geymslu.
Eldhús: Eldhúsinnrétting er upprunaleg en snyrtileg, parket á gólfi.
Stofa/borðstofa: Gott opið rými samtengt eldhúsi, parketlagt. Við útvegg er kamína og við hlið hennar er gengið út á timburverönd/bakgarð.
Þvottahús/geymsla: Flísalögð eins og forstofa, hillur á veggjum og vinnuborð. Rafmagnstafla og hitagrind er í þvottahúsi. Frá þvottahúsi er aðgengi að háalofti þar sem útbúin hefur verið góð auka-geymsla.
Baðherbergi og þrjú svefnherbergi innaf herbergjagangiHjónaherbergi: Parketlagt með stórum fataskáp.
Svefnherbergin: 2 svefnherbergi, bæði parketlögð, án fataskápa.
Baðherbergi: Þar eru flísar á gólfi, fín innrétting og baðkar með sturtu þar sem einnig eru flísar.
Bakgarður: Bakgarður er vel gróinn, stórt og snyrtilegur, í SV-horni hans er fínn kofi sem getur nýst sem geymsluskúr.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við: Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // heimir@fastaust.is -----
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% (fyrstu kaupendur) 0,8% (einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 m.vsk.
Skoðunarskylda kaupenda:Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Fasteignasala Austurlands skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Fasteignasala Austurlands // Austurvegi 21, 730 Reyðarfirði // www.fastaust.is