GUNNAR VALSSON OG LIND FASTEIGNASALA KYNNIR: STÓRGLÆSILEGA 3JA HERBERGJA ÚTSÝNISÍBÚÐ Á EFRI HÆÐ Í TVÍBÝLI VIÐ GARÐAVEG 3 Í HAFNARFIRÐI. HÚSIÐ VAR ENDURBYGGT AÐ INNAN OG UTAN ÁRIÐ 1996. GÖNGUFÆRI Í MIÐBÆ HAFNARFJARÐAR, LEIKSKÓLA, SKÓLA OG ÚTIVISTASVÆÐI. Nánari lýsing:Sameiginleg
forstofa með neðri hæð, þaðan er parketlagður stigi upp á efri hæð.
Samliggjandi stofa og borðstofa, parket á gólfi. Tvennar svalir, aðrar mjög stórar og snúa í suðurs-vestur.
Eldhúsið er með fallegri, hvítri innréttingu, parket á gólfi.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtugleri, innrétting og tengi fyrir þvottavél.
Hjónaherbergið er parketlagt og með góðum skápum.
Barnaherbergið er einnig parketlagt.
Yfir góðum hluta íbúðar er gott
risloft, sem nýtist sem
geymslupláss.
Tvö sameiginleg bílastæði eru á lóð og er samkomulag við neðri hæð um hver notar hvaða stæði.
Á lóð stendur
timburskúr í óskiptri sameign.
Endurbætur:- Hús endurbyggt að innan sem utan árið 1996 og þar á meðal skólplagnir
- Viðbygging byggð 1996
- Húsið málið að utan 2019
- Suðursvalir byggðar 2024
- Eldhús var endurnýjað árið 2015
- Harðparket á íbúð árið 2015
- Gluggar á suðvestur hlið hússins voru yfirfarnir 2018
- Skipt verður um allar rennur í ágúst 2026
- Ómálað bárujárn á efri hæð hjá suðursvölum verður málað í ágúst 2026
Annað:Kvöð er lýst á húsið fyrir sérafnotareiti beggja lóða og má þessi íbúð setja verönd við suðaustur gafl húsins.Einnig er þinglýst kvöða á milli íbúða að megi setja hurð og stiga frá minna herberginu niður á þann pall, að því tilskildu að leyfi fáist frá Hafnarfjarðabæ.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR GUNNAR VALSSON LÖGG FASTEIGNASALI Í S: 699-3702 / GUNNAR@FASTLIND.IS