LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir fallegt , rúmgott og vel skipulagt parhús með fallegu útsýni á tveimur hæðum við Flesjakór 13 í Kópavogi. Stórar suðursvalir með útgengi frá stofu. Fjögur rúmgóð svefnherbergi og auðvelt er að bæta við einu til tveimur svefnherbergjum til viðbótar. Rúmgóðar stofur, tvö baðherbergi. Mikil lofthæð er á efri hæð hússins. Gólfhiti er á meirihluta eignarinnar.
Stór bakgarður með lerki verönd með skjólveggjum og útieldhúsi með kaldri 5 m2 geymslu úr lerki . Önnur 10 m2 köld geymsla úr lerki er við hlið bílskúrs. Heildarstærðin á eigninni er 261,9 m2 , þarf af bílskúr 37,1 m2 . Einstakt útsýni til suðurs. Stutt í skóla, leikskóla og helstu þjónustu.
Efri hæðin geymir eldhús, stofu , borðstofu, rúmgott baðherbergi og þrjú rúmgóð svefnherbergi
Neðri hæðin geymir rúmgott svefnherbergi, baðherbergi , rúmgott sjónvarpshol sem auðvelt væri að nota sem fimmta svefnherbergið, rúmgott þvottahús með stórri geymslu innaf , einnig er rúmgott rými með glugga sem væri hægt að opna frá sjónvarpsrými og nota sem svefnherbergi. Innangengt í rúmgóðan bílskúr með geymslu innaf
Neðri hæð:
Forstofa með flísalögðu gólfi, fataskáp ásamt fatahengi, Innangengt er í bílskúr úr forstofu.
Bílskúrinn er rúmgóður með flísalögðu gólfi, bíslkúrshurð er extra hárri hurð , hurðaropnari, Heitt og kalt vatn. Innaf bílskúr er geymsla með hillum.
Forstofuherbergi er rúmgott, parket á gólfi, fataskápur.
Sjónvarpsherbergi með parketi á gólfi og stórri rennihurð
Þvottahús með flísalögðu gólfi. Innrétting með tækjum í vinnuhæð.
Parketlagður stigi er á milli hæða og er vegglýsing í stiga. Þakgluggi.
Efri hæð: Mikil lofthæð er á allri efri hæð hússins.
Eldhúsið er mjög rúmgott og bjart, opið við stofu. Hvít innrétting, helluborð , ofn í vinnuhæð, gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingu, innbyggð uppþvottavél, parket á gólfi.
Stofan er rúmgóð og björt,parket á gólfi. útgengt á stórar suðursvalir. Fallegt útsýni er úr stofu.
Svefnherbergisgangur er með parketi á gólfi, úgengt er út í bakgarð.
Hjónaherbergið er rúmgott, parket á gólfi, fataskápur.
Herbergi rúmgott, parket á gólfi, fataskápur.
Herbergi rúmgott, gluggar á tvo vegu, parket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergið er mjög rúmgott. flísalagt í hólf og gólf. Góð innrétting, stórt baðkar, upphengt , salerni. Rafstýrður loftgluggi, hiti í gólfi.
2023 var lagt nýtt gegnheilt parket og eignin máluð að innan.
Bílaplan er mjög rúmgott og hellulagt með hitalögn sem rúmar 4-5 bíla. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali i simi 8222 123 eða helga@fastlind.is