NÝTT 65 FM ATVINNUHÚSNÆÐI Á ESJUMELUM – 6 METRA LOFTHÆÐ – LAUST STRAXBilið hentar vel iðnaðarmönnum og verktökum, bílaverkstæðum og bónstöðvum, heildsölum og netverslunum með lager, ferðaþjónustu eða sem rúmgóð geymsla fyrir húsbíl, hjólhýsi eða bíla.
Baldur fasteignasali – Beinn sími 450-0000 kynnir: Í einkasölu nýtt 65 fermetra iðnaðarbil með innkeyrsluhurð, bil merkt 120 að Járnsléttu 2 á Esjumelum, 162 Reykjavík. Húsið var fullgert 2026 og bilið afhendist tilbúið til notkunar
með fullbúnu salerni.
Lofthæð er um 6 metrar við útvegg og
yfir 8 metrar í mæni, rafdrifin
innkeyrsluhurð er 3 x 4,5 metrar og hvert bil hefur sér rafmagnstöflu með
þriggja fasa tenglum. Hægt er að fá um
50 fermetra milliloft smíðað fyrir afhendingu, með
3,6 metra lofthæð undir millilofti, gegn viðbótargreiðslu. Olíuskilja er í húsinu og tvö merkt bílastæði fylgja bilinu.
Stærð eignarinnar er 65,10 fermetrar samkvæmt skráningu HMS. Bílastæði og hlutdeild í sameign eru ekki innifalin í skráðri stærð.
Bil 120 - Þetta bil65,1 fm / 29.900.000 kr. án millilofts
115,1 fm / 33.400.000 kr. með millilofti
Bil 111 - Með millilofti 125,3 fm / 38.000.000 kr.
Bil 109 75,3 fm / 34.500.000 kr. án millilofts
125,3 fm / 38.000.000 kr. með millilofti
Hægt er að kaupa bil með eða án millilofts. Fermetrar með millilofti er áætlaður heildar gólfflötur, ekki skráðir fermetrarSmelltu hér fyrir nánari upplýsingar - eða hringdu í Baldur fasteignasala í síma 450-0000
Aðal sölupunktar:- Nýtt og fullgert 2026, matsstig 7
- Lofthæð um 6 m við útvegg og yfir 8 m í mæni
- Milliloft í boði: um 50 fermetrar, smíðað fyrir afhendingu, 3,6 m lofthæð undir millilofti. Verð 33,4 m.kr. með millilofti, þá um 115 fermetrar í heild.
- Rafdrifin innkeyrsluhurð 3 x 4,5 m með glugga, gönguhurð við hliðina
- Sér rafmagnstafla í bilinu með 32 A og 16 A þriggja fasa tenglum
- Fullbúið salerni með handlaug
- Hitaveita og ofnahiti, niðurfall, þakgluggi sem gefur dagsbirtu
- Olíuskilja í húsinu - hentar bílaverkstæðum, bónstöðvum og verktökum
- Tvö merkt bílastæði á malbikuðu plani beint fyrir framan bilið
- Hurð inn á sameiginlegan þjónustugang hússins - önnur útgönguleið / flóttaleið
- Stálgrind og einangraðar einingar á veggjum og þaki - viðhaldslítið hús
- Laust til afhendingar við kaupsamning
- Vsk-kvöð yfirtekin af kaupanda í vsk-skyldri starfsemi
Bilið skiptist í opið vinnurými með innkeyrsluhurð og salerni með handlaug. Þá fylgja bilinu tvö merkt bílastæði og hlutdeild í sameign hússins, þar á meðal þjónustugangi og tæknirými.
Nánari lýsing:Vinnurými: Steypt gólf með niðurfalli, hvítar yleiningar á veggjum, lofthæð um 6 m við útvegg og yfir 8 m í mæni. Þakgluggi úr polycarbonati, LED loftlýsing, ofn og sér rafmagnstafla með 32 A og 16 A þriggja fasa tenglum við innkeyrsluhurð.
Innkeyrsluhurð: Rafdrifin innkeyrsluhurð 3 x 4,5 m með gluggarönd. Gönguhurð við hliðina.
Salerni: Um 3,8 fermetra, salerni og handlaug.
Þjónustugangur: Hurð úr bilinu inn á sameiginlegan gang eftir miðju hússins, með aðgengi að inntaki og aðaltöflu. Inngangur á gang á báðum göflum hússins.
Húsið:Járnslétta 2 er 22 bila atvinnuhúsnæði byggt 2026. Húsið stendur á staðsteyptri plötu með járnbentum sökklum, burðarvirkið er stálgrind frá Hardeman í Hollandi, og það er klætt einangruðum yleiningum á veggjum og þaki. Bilin liggja í tveimur röðum, bak í bak, með yfirbyggðum þjónustugangi á milli. Olíuskilja er í fráveitukerfi hússins. Lóðin er malbikuð með tveimur merktum bílastæðum við hvert bil.
Staðan í dag:Húsið er fullgert (matsstig 7 hjá HMS) og bilið afhendist tilbúið til notkunar: steypt gólf, salerni fullbúið, rafmagn tengt með sér töflu, hiti á, innkeyrsluhurð með rafopnun og lóð frágengin. Kaupandi sér sjálfur um innréttingar, kaffistofu eða skrifstofu eftir þörfum og getur fengið milliloft smíðað fyrir afhendingu.
Byggingarlýsing:Burðarvirki: Staðsteyptir sökklar og botnplata. Stálgrind með krossböndum í þaki og göflum, boltuð á steyptar undirstöður.
Veggir og þak: Einangraðar yleiningar (samlokueiningar með stálplötum og einangrunarkjarna). Mænisþak með þakgluggum úr polycarbonati.
Hiti: Hitaveita, ofnakerfi með sameiginlegri mælagrind fyrir húsið. Ofn í vinnurými.
Lagnir: Kalt og heitt neysluvatn á salerni. Gólfniðurfall í vinnurými. Olíuskilja í fráveitu hússins.
Rafmagn: Sameiginleg aðaltafla í þjónustugangi og sér greinatafla í hverju bili með aðalrofa, lekaliða og 32 A og 16 A þriggja fasa tenglum. Loftlýsing og netbakki.
Hurðir: Rafdrifin innkeyrsluhurð 3 x 4,5 m, gönguhurð út og hurð inn á þjónustugang.
Kjör:- Verð 29,9 m.kr. án millilofts. Með um 50 fermetra millilofti smíðuðu fyrir afhendingu er verðið 33,4 m.kr.
- Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.
- Vsk-kvöð hvílir á eigninni, áætluð um 4.981.284 kr. Kaupandi í vsk-skyldri starfsemi yfirtekur kvöðina. Kaupandi sem ekki er í vsk-skyldri starfsemi greiðir hana upp við kaupsamning.
- Fasteignamat 2026: 24.500.000 kr. / Fyrirhugað fasteignamat 2027: 25.700.000 kr.
- Brunabótamat: 23.000.000 kr.
Staðsetning: Esjumelar eru athafnasvæði við Vesturlandsveg, norðan Mosfellsbæjar við rætur Esju, þar sem fjöldi iðnaðar- og þjónustufyrirtækja hefur byggt upp á síðustu árum. Greið leið er á Vesturlandsveg í báðar áttir – í Mosfellsbæ og höfuðborgina annars vegar og á Kjalarnes og Vesturland hins vegar.
Bil 109 og 111 (75,30 fm) í sama húsi eru einnig til sölu hjá Baldri.
--- Smelltu hér til að skoða önnur bil ---
Bil 120 - Þetta bil65,1 fm / 29.900.000 kr. án millilofts
115,1 fm / 33.400.000 kr. með millilofti
Bil 111 - Með millilofti 125,3 fm / 38.000.000 kr.
Bil 109 75,3 fm / 34.500.000 kr. án millilofts
125,3 fm / 38.000.000 kr. með millilofti
Nánari upplýsingar veitir:Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / Beinn sími 450-0000Skoða meðmæli -
Verðmat fasteigna -
Að selja hjá Baldri