Fasteignaleitin
Skráð 13. nóv. 2026

Bakkabraut 13a íb506

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
228.1 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
300.000.000 kr.
Fermetraverð
1.315.213 kr./m2
Fasteignamat
2 kr.
Mynd af Margrét Rós Einarsdóttir
Margrét Rós Einarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Jarðhæð · efsta
Garður
Svalir
Bílskúr
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2242821_506
Landnúmer
178919
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignasalan TORG kynnir: Glæsilega og einstaklega rúmgóða Penthouse-íbúð í nýju fjölbýlishúsi með stórkostlegu útsýni yfir höfuðborgina og Esjuna, stóraukinni lofthæð og þrennum svölum, samtals 59 m². Íbúðin er við Bakkabraut 13A, merkt 0506, á 5. hæð (efstu). Eignin er staðsett við sjávarsíðuna á Kársnesi, í næsta nágrenni við smábátahöfnina. Íbúðin er björt og vel skipulögð, með stórum gluggum, þremur svefnherbergjum, þar af rúmgóðri hjónasvítu með fataherbergi og sérbaðherbergi, auk annars baðherbergis og tveggja snyrtinga, glæsilegu alrými með stofu, borðstofu, sjónvarpsstofu og eldhúsi, sérþvottahúsi og forstofu. Eignin er samtals 228,1 m², þar af er íbúðin 198,5 m² og bílskúr (frístundaskúr merktur 0002) 29,6 m². Eigninni fylgja tvö bílastæði í bílakjallara, merkt B26 og B27. Íbúðin er eingöngu sýnd í einkasýningum. Gert er ráð fyrir afhendingu vorið 2027. 

Allar nánari uppl. veitir Margrét Rós fasteignasali í GSM: 856-5858 netfang margret@fstorg.is

Nánari lýsing íbúðar 506: Gengið er inn í rúmgóða forstofu með góðu skápaplássi. Þaðan er komið inn í bjart og opið alrými með stóraukinni lofthæð, þar sem rúmgóð stofa, borðstofa, sjónvarpsstofa og eldhús með eyju mynda fallega heild. Eldhúsið býður upp á gott vinnupláss og mikið skápapláss. Stórir gluggar hleypa mikilli birtu inn í rýmið og veita stórkostlegt útsýni yfir höfuðborgina og Esjuna. Frá sjónvarpsstofu er útgengt á 16,8 m² þaksvalir þar sem gert er ráð fyrir möguleika á skjólveggjum og heitum potti. Frá stofu er jafnframt útgengt á 12,2 m² svalir og frá svefnherbergishluta á 30 m² svalir. Í stofunni er einnig möguleiki á eldstæði. Svefnherbergin eru þrjú, þar af einstaklega rúmgóð hjónasvíta með innangengu fataherbergi, sérbaðherbergi og sérsnyrtingu. Frá hjónasvítunni er útgengt á 30 m² svalir. Hin svefnherbergin eru tvö og bæði rúmgóð. Auk þess er annað baðherbergi, gestasnyrting og sérþvottahús innan íbúðar.

Afhending íbúðar 506: Auglýst verð miðast við afhendingu íbúðarinnar tilbúinnar til innréttinga, sem gefur kaupendum kost á að haga hönnun og efnisvali eftir eigin stíl og óskum. Einnig er í boði að fá íbúðina afhenta fullbúna án megingólfefna á 330.000.000 kr. Við þau skil geta kaupendur valið á milli tveggja hönnunarþema, Yls og Steins. Nánari upplýsingar um afhendingarástand og endanleg skil er að finna í skilalýsingu seljanda.

Kaupendur geta haft áhrif á efnisval og skipulag íbúðar komi þeir snemma að kaupum. Allar nánari uppl. veitir Margrét Rós fasteignasali í GSM: 856-5858 netfang margret@fstorg.is
Sjá nánari upplýsingar um verkefnið á sölusíðu Vesturbakka.

Nánar um Vesturbakka verkefnið: Við Vesturbakka rísa 118 vandaðar íbúðir, þar sem fágaður arkitektúr, tímalaus hönnun og nútímaþægindi fara saman. Íbúðirnar eru fjölbreyttar og einkennast af vel útfærðu skipulagi og vönduðu efnisvali. Vesturbakki stendur við Kársneshöfn, þar sem framtíðarsýn Kópavogsbæjar fyrir svæðið er að taka á sig mynd. Í skipulagi er meðal annars gert ráð fyrir veitingastað og aðstöðu til sjósunds, sem munu stuðla að lifandi og aðlaðandi hafnarsvæði.

Sameiginleg aðstaða til afþreyingar og vellíðunar verður á 1. hæð við Vesturbakka 21b og stendur íbúum hússins til boða. Þar verður vönduð líkamsræktaraðstaða, sauna og útisvæði með heitum og köldum potti. Jafnframt verður þar golfhermir og aðstaða til pílukasts. Í bílakjallara verða 103 sérmerkt bílastæði og á lóð hússins verða 58 bílastæði til viðbótar.

Við hönnun bygginganna er lögð áhersla á þægindi og góða innivist, meðal annars með vönduðu byggingarefnavali. Allar íbúðir verða með gólfhita og sérstöku loftskiptakerfi, sem stuðlar að góðum loftgæðum.

Við fullbúin skil verða íbúðirnar útfærðar samkvæmt hönnunarþemunum Yl eða Steini, með innréttingum frá Parka eða Voke III og heimilistækjum frá Siemens. Helluborð verður með innbyggðri viftu og möguleika á þráðlausri fjarstýringu. Útfærsla eldhústækja verður mismunandi eftir íbúðum, en þar verða meðal annars sambyggðir baksturs- og örbylgjuofnar, frystar og vínkælar. Í íbúðunum verður einnig free@home hússtjórnunarkerfi, sem gerir íbúum kleift að stýra meðal annars hitastigi, lýsingu og gardínum. Tæknimaður kemur í hverja íbúð til að stilla kerfið og leiðbeina íbúum um notkun þess.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
2242821_506
Fasteignanúmer
2242821_506
29.6 m2
Fasteignanúmer
2242821_506

Myndir (27)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hólagata 28
Skoða eignina Hólagata 28
Hólagata 28
900 Vestmannaeyjar
206 m2
Hæð
514
373 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Skoða eignina Ásgarður 20
3D Sýn
Efsta hæð
Skoða eignina Ásgarður 20
Ásgarður 20
108 Reykjavík
51,7 m2
Fjölbýlishús
211
1043 þ.kr./m2
53.900.000 kr.
Skoða eignina Álalind 14
Opið hús:14. nóv. kl 12:00-12:30
Skoða eignina Álalind 14
Álalind 14
201 Kópavogur
76,7 m2
Fjölbýlishús
211
911 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Bakkabraut 13a íb505
Bílastæði
Efsta hæð
Bakkabraut 13a íb505
200 Kópavogur
132,5 m2
Fjölbýlishús
322
1358 þ.kr./m2
180.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin