Miklaborg kynnir: Virkilega falleg og vel skipulögð 4ra herbergja útsýnis íbúð á 6. hæð. Rúmgóð stofa og borðstofa í fallegu flæði með hálf opnu eldhúsi. Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf með sturtuklefa og í íbúðinni er líka þvottahús. Þrjú svefnherbergi og eru þau öll með fataskápum. Frá stofu, suðvestur svölum og eldhúsi er einstakt útsýni fyrir kópavoginn og til sjávar. Blokkin hefur fengið gott viðhald.
Geymsla í kjallara og tvö bílastæði í bílakjallara. Íbúðin er laus til afhendingar við kaupsamning.
Nánari upplýsingar veitir Þröstur Þórhallsson löggiltur fasteignasali í síma 897-0634 eða throstur@miklaborg.is
Nánari lýsing: Komið er inn á parketlagt hol og til hliðar eru þrjú parketlögð svefnherbergi sem eru öll með fataskápum. Stofa er stór og björt með glæsilegu útsýni í suð-vestur. Svalir eru útaf borðstofu. Eldhús er opið við borðstofu með fallegri innréttingu. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með sturtuklefa. Þvottahús er til hliðar við Baðherbergi. Í kjallara eru geymsla og tvö bílastæði í bílakjallara og er búið að tengja rafmagnshleðslu fyrir bíl í öðru stæðinu. Í kjallara er einnig sameiginleg hjóla og vagnageymsla ásamt sorpgeymslu. Lóðin umhverfis húsið er snyrtileg og húsið lítur vel út að útan. Mjög góð staðsetning í kópavoginum nálægt verslun og þjónustu. Sundlaug og skólar í stuttu göngufæri.
Falleg útsýnisbúð á 6. með tveimur bílastæðum í bílakjallara.
Nánari upplýsingar veitir Þröstur Þórhallsson löggiltur fasteignasali í síma 897-0634 eða throstur@miklaborg.is
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 17/03/2008 | 27.450.000 kr. | 29.500.000 kr. | 113.7 m2 | 259.454 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
210 | 105,1 | 69,9 | ||
200 | 125,6 | 79,9 | ||
200 | 122,7 | 140,9 | ||
200 | 117,1 | 119,9 | ||
210 | 115,6 | 104,9 | ||
210 | 128,8 | 119,9 |