Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. og Trausti fasteignasala kynna í einkasölu mjög fallega og vel skipulagða sérhæð í góðu þríbýli með bílskúr miðsvæðis í Reykjavík að Skipholti 66. 2024 var húsið múrviðgert og málað.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit. Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign.
Samkvæmt HMS er eignin skráð 196,0 fm og þar af er bílskúr skráður 28,0 fm.
Eignin skiptist í þrískipta stofu/borðstofu, eldhús, 4 svefnherbergi, 2 baðherbergi, þvottahús, forstofu og góðan bílskúr.
Nánari lýsing:
Forstofa er rúmgóð með flísar á gólfi og gott skápapláss.
Stofa/borðstofa er þrískipt og liggur í U kringum eldhús. Mjög rúmgóð með mikla möguleika. Parket á gólfi. Útgengt á góðar flísalagðar suð-vestur svalir.
Eldhús með fallegri Brúnás innréttingu með ofn(nýr) í vinnuhæð, viftu yfir helluborði, innbyggða uppþvottavél(ný) og flísar milli skápa. Neðri hluti var filmaður svartur 2024 sem setur skemmtilegan svip á eldhúsið og laus eyja sem passar einstaklega vel inn getur fylgt með. Þægilegar korkflísar á gólfi.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með parket á gólfi og gott skápa- og skúffupláss.
Svefnherbergi II er rúmgott með parket á gólfi og góðan skáp.
Svefnherbergi III er rúmgott með parket á gólfi og góðan skáp.
Svefnherbergi IIII er rúmgott með parket á gólfi. Var áður sjónvarpsstofa/partur af stofu en breytt í svefnherbergi 2022.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með Brúnás innréttingu, stórt hornbaðkar, handklæðaofn, upphengt salerni og glugga.
Baðherbergi II er flísalagt í hólf og gólf með Brúnás innréttingu og sturtuklefa.
Þvottahús er rúmgott með góða innréttingu og skápa, skolvask og flísalagt í hólf og gólf. Gluggi í þvottahúsi.
Bílskúr er 28,0 fm og mjög snyrtilegur með góðri lofthæð, nýjum hillum og góðu geymsluplássi.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla þar sem einnig er hægt að geyma dekk.
2 bílastæði fylgja eigninni, eitt fyrir framan bílskúr og annað framan við tröppur.
Frábær fjölskyldueign á góðum stað miðsvæðis í Reykajvík. Stutt í leik-, grunn- og menntaskóla sem og alla þjónustu. Kringlan, Klambratún og miðbærinn í göngufæri og fallegar gönguleiðir í Öskjuhlíð.Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is