Eignamiðlun kynnir:
Falleg og björt 78,5 fm 3-4ra herbergja íbúð á efstu hæð í fjölbýlishúsi við Flétturima 10 í Grafarvogi. Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, eldhús og stofu. Ca. 15 fm ósamþykkt risloft er ekki skráð í fermetratölu eignarinnar, sem í dag er notað sem sjónvarpsherbergi. Sérgeymsla í kjallara. Góð lofthæð og svalir í suðvestur með fallegu útsýni. Vinsæl staðsetning þar sem stutt er í skóla og alla þjónustu.
**Sækja söluyfirlit**Nánari lýsing:Forstofa: Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi og fatahengi.
Hjónaherbergi: Á vinstri hönd frá forstofu er komið inn í hjónaherbergi með fatahengi og harðparketi á gólfi.
Stofa: Úr forstofu er komið inn í opið rými. Stofan er með mjög góðri lofthæð, harðparketi á gólfi og stórum og flottum hornglugga.
Eldhús: Eldhúsið er samliggjandi stofu og með fallegri innréttingu, flísar eru á milli efri og neðri skápa, helluborð með ofni undir og tengi fyrir uppþvottavél. Úr eldhúsi er gengið út á rúmgóðar svalir í suðvestur með fallegu útsýni.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með innréttingu og baðkari með sturtuaðstöðu. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara er á baðherbergi og vélarnar eru í vinnuhæð.
Svefnherbergi: Við hlið baðherbergis er svefnherbergi með góðri lofthæð, stórum glugga og með harðparketi á gólfi.
Sjónvarpsherbergi: Úr stofu er gengið upp stiga í ca. 15 fm risloft sem er ekki samþykkt og ekki skráð í fermetratölu eignarinnar. Rýmið nýtist vel sem sjónvarpsherbergi/vinnuaðstaða.
Geymsla: Sérgeymsla með hillum er í kjallara og sameiginleg vagna- og hjólageymsla á jarðhæð.
Framkvæmdir:Gerð var úttekt á húsinu í ársbyrjun 2024. Húsfélagið hefur staðið að framkvæmdum á grundvelli þeirrar skýrslu. Búið er að skipta um glugga og gler þar sem þörf var á, skipt var um járn, pappa og fl. á þaki og farið hefur verið í múrviðgerðir og málun á hús sem er nú á lokametrunum. Kostnaður vegna framkvæmda er greiddur af seljanda.
Nánari upplýsingar veitir Lilja Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 649-3868 eða lilja@eignamidlun.is ***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook