Eignamiðlun kynnir:
Vel skipulögð og björt þriggja herbergja íbúð með vestursvölum, sérinngangi af svölum og bílastæði í bílageymslu við Skeljagranda 2, 107 Reykjavík. Íbúð í vel viðhöldnu 14 íbúða fjölbýlishúsi í Vesturbænum.
Íbúðin er skráð 79,3 fm og bílastæði í bílageymslu er skráð 30,9 fm, samtals 110,2 fm. Að auki fylgir íbúðinni um 15 fm geymsla sem er ekki inni í skráðum fermetrum. Skráning íbúðarinnar ætti að vera 79,3 fm + 15 fm eða 94,3 fm miðað við reglugerð í dag, en þá væri bílastæði í bílageymslu ekki í skráðum fm.Eignin samanstendur af: Forstofu, gangi, eldhúsi, stofu, svölum, tveimur svefnherbergjum, baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, bílastæði í kjallara, sér geymslu í sameign ásamt vagna- og hjólageymslu.
Nánari lýsing: Forstofa: Flísalögð og með fatahengjum.
Eldhús: Er með góðu skúffu- og skápalássi og parketi á gólfi
Stofa: Er rúmgóð og björt með útgengi út á svalir með útsýni inn í garðinn á milli húsanna að Skeljagranda 2-8. Parket er á gólfi.
Hjónaherbergi: Er rúmgott og með fataskápum og parketi á gólfi.
Barnaherbergi: Er með parketi á gólfi.
Baðherbergi: Er flísalagt og með baðkari með sturtuaðstöðu. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara. Innrétting er við vask.
Einkabílastæði: Er í sameiginlegum bílakjallara .
Sér geymsla ásamt hjóla- og vagnageymslu eru í sameign í kjallara.
Eignin er vel staðsett og er stutt í alla helstu þjónustu eins og skóla, leiksskóla, sundlaug, verslanir og leikvelli.
Húsið hefur fengið gott viðhald síðustu ár.Nánari upplýsingar veitir Hilmar Þór Hafsteinsson Lögg. fasteignasali/leigumiðlari, í síma 824-9098, tölvupóstur hilmar@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook