Nýtt á skrá! Kleppsvegur 36 Reykjavík - 4ra herbergja íbúð á 1. hæð með svölum inn í skjólgóðan bakgarð.
Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir til sölu afar fallega og bjarta íbúð við Kleppsveg 36 í Reykjavík. Um er að ræða 108,4 fermetra 4ra herbergja íbúð á 1. hæð með 3 svefnherbergjum, rúmgóðri stofu með gluggum og svölum til suðurs inn í bakgarð hússins. Tvær sérgeymslur í kjallara sem eru 10,9 og 3,2 fermetrar að stærð.
Eldhúsið er nýlega endurnýjað á smekklegan máta með fallegum innréttingum frá Fríform og nýjum eldhústækjum. Þá var harðparket í stofu og hjónaherbergi endurnýjað árið 2024 ásamt skápum í hjónaherbergi og á gangi. Árið 2024 var vesturgafl hússins klæddur og skipt um glugga á þeirri hlið (austurgafl var klæddur eitthvað áður). Árið 2020 var frérennsli/skólp endurnýjað (undir botnplötu og út frá húsi). Nýjum brunni var komið fyrir og drenlagnir endurnýjaðar við vesturgafl/kjallaraíbúð. Einnig voru vatnslagnir í sameign í kjallara endurnýjaðar að hluta. Árið 2019 var stigahús málað og teppalagt, eldvarnarhurðir endurnýjaðar og þak yfirfarið og málað (þakjárn og rennur voru endurnýjaðar árið 2008). Malbikuð sameiginleg stæði á framlóð og steypt stétt við inngang.
Stutt er í alla þjónustu (m.a. Laugalæk, Borgartún og Holtagarða) og afþreyingu. Laugardalurinn með allri sinni útivist, Laugardalslauginni, íþróttasvæðum og fallegum gönguleiðum í næsta nágrenni. Leikskóli og grunnskólar í göngufjarlægð.
Nánari lýsing: Forstofa/hol: Með parketi á gólfi og skápum. Gengið er inn í öll rými íbúðar frá holi. Stofa: Er rúmgóð með harðparketi á gólfi. Gluggar til suðurs sem snúa inn í bakgarð hússins. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Hjónaherbergi: Með harðparketi á gólfi, góðum skápaplássi og glugga til suðurs. Útgengi á svalir frá hjónaherbergi. Svalir: Snúa til suðurs inn í bakgarð hússins. Eldhús: Er nýlega endurnýjað á afar fallegan máta. Eldhúsinnrétting frá Fríform, AEG eldhústæki og vinylparket. Bakaraofn, spansuðu helluborð og háfur. Tengi fyrir uppþvottavél og þvottavél. Gluggi til norðurs með fallegu útsýni. Baðherbergi: Með flísum á gólfi, baðkari með sturtutækjum, nýlegri innréttingu við vask og salerni. Svefnherbergi II: Með plastparketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs. Svefnherbergi III: Með plastparketi á gólfi og glugga til norðurs. Geymsla I: Er 10,9 fermetrar að grunnfleti í kjallara. Geymsla II: Er 3,2 fermetrar að stærð með hillum og glugga.
Þvottaherbergi: Er sameiginlegt í kjallara. Málað gólf og þvottavélar og þurrkari í eigu húsfélags. Vaskur, vinnuborð og gluggi til suðurs. Þurrkherbergi: Er sameiginlegt í kjallara. Málað gólf, þvottasnúrur, vinnuborð og gluggar til suðurs. Útgengi á baklóð hússins. Hjóla- og vagnageymsla: Er sameiginleg í kjallara. Frystiklefi: Er staðsettur í kjallara og hafa eigendur sitt pláss í sameiginlegum frystiklefa.
Nánari upplýsingar: Heimir Hallgrímssyni lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is

Dagsetning
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
Nothæfur samningur
04/05/2022
47.000.000 kr.
55.000.000 kr.
108.4 m2
507.380 kr.
Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.