Skráð 12. feb. 2026

Kerhraun C 83

SumarhúsSuðurland/Selfoss-805
14.9 m2
1 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
17.900.000 kr.
Fermetraverð
1.201.342 kr./m2
Fasteignamat
8.540.000 kr.
Brunabótamat
11.150.000 kr.
Mynd af Jón Smári Einarsson
Jón Smári Einarsson
Löggiltur fasteignasali / MPM, viðskiptafræðingur
Byggt 2015
Garður
Fasteignanúmer
2344451
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Sólpallur
Upphitun
Hitaveita
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Rör að heita pottinum er frostsprungið og af þeim sökum virkar potturinn ekki, en hann er í annars í góðu lagi.
Jón Smári Einarsson lgf. og Fasteignaland kynna eignina Kerhraun 83 C, 805 Selfoss, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 234-4451 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eignin Kerhraun 83 C er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 234-4451, birt stærð 14.9 fm.

Lýsing:
Kerhraun C 83, er fallegt 5.088 fm eignarland í lokuðu sumarbústaðahverfi í Grímsnes- og Grafningshreppi norðan við Kerið úr landi Seyðishóla.

Á landinu er 14,9 fm einangrað sumarhús (bjálkahús) sem skráð er sem gestahús. Húsið er með baðherbergi með sturtu. Í aðal rými hússins er lítil eldhúsaðstaða með innfelldu span-helluborði og ísskáp, þar er líka sérhönnuð svefnaðstaða. Auk sumarhússins fylgja með tveir geymslu gámar sem staðsettir eru á lóðinni. Góð timburverönd með girðingu er við húsið með heitum potti (hitaveita). Heitt, kalt vatn og rafmagn er í húsinu og er það hitað með rafmagni. Við húsið er rotþró.  Búið er að gróðursetja töluverðan fjölda trjáa í landinu.

Þetta er eign sem vert er að skoða á frábærum stað í Kerhrauni. Húsið selst í því ástandi sem það er og áhugasömum bent á að kynna sér húsið vel og einnig er bent á að ekki er búið að fullnýta byggingaréttinn á landinu. Búið að jarðvegskipta fyrir sumarhúsi við hlið gámanna (óljóst er vitað hvort púðinn er fullgerður eða ekki). Skv. deiliskipulagi má byggja eitt sumarhús og að auki geymslu eða gestahús allt að 40 fm. Einnig er heimild fyrir smáhýsi allt að 15 fm án byggingeyfis, ef aðlhús lóðar er risið. Nýtingarhlutfall lóðar er 3% af flatarmáli lóðar, er gerir um 152 fm alls.

Eignin er tilbúin til afhendingar við kaupsaming. Möguleiki er að fá búslóð með í kaupum á eigninni að undanskildum persónulegum munum.
Árgjald í félag sumarhúseiganda er ca. kr. 50.000 á ári. Upplýsingar um sumarhúsafélagið er að finna á slóðinni:  Kerhraun.is

Staðsetning og nærumhverfi:
Þetta er lokað svæði með rafmagnshliði (símahlið).
Góð aðkoma er að húsinu og næg bílastæði. Stutt er til þekktra staða á Suðurlandi, Skálholts, Laugarvatns, Geysis, Gullfoss og Kersins. Stutt er í veiði, sundlaug, golfvöll, íþróttavöll og fallegar gönguleiðir. Akstur frá Reykjavík ca. 50 mínútur.

Nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir:
Jón Smári Einarsson
Löggiltur fasteignasali / MPM, viðskiptafræðingur.
jonsmari@fasteignaland.is
sími 860-6400

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignaland fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup á íbúðarhúsnæði m.v. amk. 50% hlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900 . 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.


 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
02/12/20225.770.000 kr.6.500.000 kr.14.9 m2436.241 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
GötuheitiPóstnr.m2Verð
851
32.9
18,5
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin