Margrét Rós lgf. og Fasteignasalan TORG kynna í sölu bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 2. hæð (efstu) með sérinngangi, svölum og sérmerktu bílastæði við Álfaheiði 2 í Kópavogi. Um er að ræða fallega og töluvert endurnýjaða eign, með mikilli lofthæð, stórum gluggum í þrjár áttir og góðu útsýni. Eignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, sérþvottaherbergi/geymslu og bjart alrými með samliggjandi eldhúsi, stofu og borðstofu. Frá öðru svefnherberginu er útgengt á svalir. Eignin er staðsett í litlu fjölbýlishúsi á rólegum og góðum stað í Kópavogi þar sem stutt er í skóla, verslanir, þjónustu og falleg útivistarsvæði.
Birt stærð eignar skv. fasteignaskrá HMS er 66,7 m² og eru allir fermetrar skráðir innan íbúðar.
Nánari lýsing eignar
Forstofa: Komið er inn um sérinngang í forstofu með harðparketi á gólfi og rúmgóðum fataskáp.
Alrými: Bjart og rúmgott alrými með samliggjandi eldhúsi, stofu og borðstofu með harðparketi á gólfi.
Eldhús: Með hvítri L-laga innréttingu, borðplötum úr gegnheilli eik og góðu skápaplássi. Innbyggð uppþvottavél, bakaraofn og spanhelluborð og gert ráð fyrir ísskáp í innréttingu.
Stofa / borðstofa: Saman í björtu og opnu rými með mikilli lofthæð og stórum gluggum sem gefa góða birtu og mikið útsýni yfir nærliggjandi byggð.
Svefnherbergi: Tvö svefnherbergi með harðparketi á gólfi. Hjónaherbergi er rúmgott með fataskáp og fataslá. Hitt svefnherbergið er bjart með aukinni lofthæð að hluta og útgengi á svalir.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með sturtu, salerni, handlaug og snyrtilegum innréttingum.
Þvottaherbergi/geymsla: Rúmgott inn af forstofu með flísum á gólfi, glugga og opnanlegu fagi. Góð aðstaða fyrir þvottavél, þurrkara og geymslu. Þaðan er aðgengi að rislofti sem nýtist sem viðbótargeymslurými.
Húsið og lóðin:
Álfaheiði 2 er lítið fjölbýlishús með sjö íbúðum, öllum með sérinngangi. Sameiginlegur garður er bæði framan og aftan við húsið. Sérmerkt bílastæði er fyrir framan húsið og rafmagn hefur verið lagt að stæðinu fyrir uppsetningu rafhleðslustöðvar. Snjóbræðsla er í hluta göngustéttar á jarðhæð, niður hallann að sorptunnum og í átt að bílastæðum.
Framkvæmdir og viðhald
Endurbætur innan íbúðar að sögn seljanda:
- Harðparket og gólflistar endurnýjaðir í íbúðinni, að undanskildu baðherbergi og þvottaherbergi.
- Eldhúsinnrétting endurnýjuð ásamt innbyggðri uppþvottavél, ísskáp, vaski og blöndunartæki. Bakaraofn endurnýjaður árið 2018 og spanhelluborð árið 2026.
- Baðherbergi endurbætt, meðal annars með nýju salerni, handlaug, skápum og blöndunartækjum.
- Nýr þrýstijafnari fyrir heitt vatn árið 2022.
- Gler í stærsta stofuglugganum ásamt botnstykkjum endurnýjuð sumarið 2026.
Framkvæmdir og viðhald sameignar að sögn seljanda:
2023: Rafmagnstafla hússins endurnýjuð.
2024: Rafmagn lagt í jörðu að bílastæðum fyrir uppsetningu rafhleðslustöðva.
2026 – fyrirhugaðar framkvæmdir: Húsfélagið hefur samþykkt endurnýjun á þakjárni, þakpappa og þakkanti yfir íbúðinni. Áætlað er að framkvæmdir hefjist í lok október 2026, háð veðri, og verður kostnaður sem fellur á íbúðina greiddur af seljanda.
Staðsetning
Eignin er staðsett í rótgrónu og fjölskylduvænu hverfi í Kópavogi þar sem stutt er í skóla, verslanir og alla helstu þjónustu. Nettó er í um 7 mínútna göngufjarlægð og Krónan, Bónus, Hamraborg og Smáralind í stuttri akstursfjarlægð. Þrír leikskólar eru í göngufæri og grunnskóli í næsta nágrenni. Þá er stutt í helstu stofnbrautir. Kópavogsdalur og Fossvogsdalur eru í nágrenninu og bjóða upp á fjölbreytta útivistarmöguleika með góðum göngu- og hjólaleiðum.
Falleg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð með sérinngangi, mikilli lofthæð, góðu útsýni og sérmerktu bílastæði á góðum stað í Kópavogi. Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð og hentar vel sem fyrstu kaup.
Nánari upplýsingar veita:
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 856-5858 / margret@fstorg.is
Aðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 773-3532 / adalsteinn@fstorg.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.