Fasteignaleitin
Skráð 13. júlí 2026

Mosavegur 7

SumarhúsSuðurland/Selfoss-806
115 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
Tilboð
Brunabótamat
55.950.000 kr.
Byggt 1990
Pallur
Heitur pottur
Sérinng.
Fasteignanúmer
22057918
Húsgerð
Sumarhús
Inngangur
Sérinngangur

Heimili fasteignasala kynnir til sölu fallegan og vel staðsettan sumarbústað (bygg. 1990) við Mosaveg 7 í landi Úthlíðar í Biskupstungum í Bláskógabyggð. Birt stærð eignarinnar er 75 fm, en þar til viðbótar eru tvö óskráð svefnloft (ca. 40 fm samtals) og nýtanlegir fermetrar því fleiri en birt stærð segir til um. Eignin samanstendur af tveimur húsum og tengibyggingu og skiptist í anddyri/gang, eldhús, borð- og setustofu í opnu rými, fjögur svefnherbergi, tvö svefnloft, baðherbergi og þvottahús. Bústaðurinn stendur á 5.829 fm leigulóð og er fullbúinn með heitu- og köldu vatni og rafmagni. Falleg fjölskyldueign sem getur verið laus til afhendingar fljótlega eftir undirritun kaupsamnings. 

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjolfur@heimili.is

Nánari lýsing.
Komið inn í anddyri þar sem til hægri er eldhús, borð- og setustofa í opnu rými auk svefnlofts yfir eldhúsi, og til vinstri eru fjögur herbergi baðherbergi og svefnloft. Í eldhúsi er nýleg innrétting og tæki, góð vinnuaðstaða og mikið skápaplass. Á gólfi er parket. Borð- og setustofa eru í opnu rými með eldhúsi og frá borðstofu er útgengt á timburverönd sem liggur umhverfis húsið. Í hinum hluta bústaðarins eru sem fyrr segir fjögur svefnherbergi með svefnplássi fyrir allt að tíu manns og baðherbergi með ágætri innréttingu, sturtuklefa og glugga með opnanlegu fagi. Yfir þessum hluta er einnig annað rúmgott svefnloft. 
Á bak við hús er nýleg timburverönd þar sem er heitur pottur (verönd og heitur pottur voru endurnýjuð haustið 2024) og fallegur kjarrivaxinn garður þar sem m.a. er sex holu frisbí-gólfvöllur. Þá er einnig viðbygging tengd húsinu þar sem er þvottahús/geymsla og á veröndinni er skúr sem hýsir vatnsinntök og stýringu fyrir heita pottinn. 

Árið 2018 var baðherbergi endurnýjað ásamt því að skipt var um rotþró. Þá hafa frárennslis-, pípu- og raflagnir verið endurnýjaðar að hluta. Lóðarleigusamningur er til 25 ára frá árinu 2018 og lóðarleiga ca. 140.000 á ári.
Úthlíðar sumarhúsasvæðið er með fjóra síma á öryggishliðum og hitaveita er á svæðinu. Þá er rekið á svæðinu sumarhúsafélag og ferðaþjónusta þar sem t.d. er níu holu golfvöllur, hestaleiga, veitingarstaður í Réttinni o.fl.

Fallegur bústaður á vinsælu svæði þar sem stutt er í falleg útivistar- og göngusvæði, og þjónustu að Flúðum og Laugarvatni. 

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjolfur@heimili.is 


Heimili fasteignasala og Landmark fasteignamiðlun eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteigasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.  

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Heimili fasteignasala
http://www.heimili.is

Myndir (34)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eyrar 6
Skoða eignina Eyrar 6
Eyrar 6
806 Selfoss
92.1 m2
Sumarhús
413
781 þ.kr./m2
71.900.000 kr.
Skoða eignina Þórsstígur 5
Skoða eignina Þórsstígur 5
Þórsstígur 5
805 Selfoss
92.1 m2
Sumarhús
423
846 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Engjagil 3
Heitur pottur
Skoða eignina Engjagil 3
Engjagil 3
806 Selfoss
97.2 m2
Sumarhús
312
565 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Skoða eignina Sogsbakki 25
Á einni hæð
Heitur pottur
Opið hús:23. júlí kl 14:00-14:30
Skoða eignina Sogsbakki 25
Sogsbakki 25
805 Selfoss
116 m2
Sumarhús
413
689 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin