Opið hús:01. mars kl 13:00-13:30
Skráð 27. feb. 2026

Vallargata 34

EinbýlishúsSuðurnes/Sandgerði-245
177.3 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
71.900.000 kr.
Fermetraverð
405.527 kr./m2
Fasteignamat
75.150.000 kr.
Brunabótamat
83.500.000 kr.
Mynd af Halla Unnur Helgadóttir
Halla Unnur Helgadóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1978
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Gæludýr leyfð
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2095270
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei
Upphitun
Sérhiti
Inngangur
Margir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
GIMLI fasteignasala og Halla Unnur Helgadóttir fasteignasali kynna:  Vallargata 34, 245 Sandgerði. Einstaklega vel skipulagt 120,9 fm einbýlishús á einni hæð ásamt sérstæðum bílskúr, 56,4 fm, alls 177,3 fm. Skipulag íbúðar: anddyri, gestasnyrting, stofa/borðstofa, eldhús með borðkrók, 4 svefnherbergi, þvottahús og geymsla. Skipulag bílskúrs: opið rými og 2 geymslur. Húsið að innan er mikið til í upprunalegu ástandi. Að utan hefur húsið fengið ágætt viðhald, þó kominn tími á þakkant (sjónskoðun)

Eignin Vallargata 34 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 209-5270, birt stærð 177.3 fm. Nánar tiltekið eign merkt 01-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Bókið skoðun hjá Halla Unnur Helgadóttir í síma 6594044, eða halla@gimli.is og/eða hjá Elín Rósa Guðlaugsdóttir í síma 773-7126, eða elinrosa@gimli.is

NÁNARI LÝSING:
Anddyri: flísar á gólfi, fataskápur.
Gestasnyrting: er innaf anddyri, rúmgóð og með glugga, flísar á gólfi.
Forstofuherbergi: er innaf anddyri, ágætt herbergi, dúkur á gólfi. (svefnherbergi #2)
Stofa/borðstofa: í einu samfelldu rými, rúmgott, opið rými að borðkrók og svefnherbergisgangi, eikarparket á gólfi.
Eldhús/borðkrókur: upprunaleg viðarfulninga-innrétting er í eldhúsinu sem og tæki, borðkrókur við glugga, flísar á gólfi.
Þvottahús: er innaf eldhúsi, flísar á gólfi, innréttingar á 2 veggjum og gluggi, útgangur.
Inntaksrými/geymsla: innaf þvottahúsi, gluggi, málað gólf.
Aðalsvefnherbergi #1: Harðparket á gólfi, upphafl. fataskápur.
Svefnherbergi #3: Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi #4: Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: rúmgott, með baðkari og sér sturtu, innrétting með vaski og gluggi, flísar á gólfi
Bílskúr: Stór bílskúr, bílskúrshurð ásamt inngönguhurð, gluggar á einni hlið og útg. á pall úr fjærenda.
Garður: lóðin er stór og vel gróin. Aðkeyrsla að bílskúr er hellulögð og á hluta lóðar, aðliggjandi að aðkeyrslu, er svæði með möl, sem hentar vel til að staðsetja kerru, tjaldvagn o.þ.u.l. Hluti baklóðar hefur verið afgirtur og honum skipt í tvennt, annars vegar svæði til ræktunar og hins vegar aflokaðan pall með heitum potti (ástand ekki vitað)

Eigandi eignarinnar hefur ekki búið í henni og getur því ekki upplýst að um ástand einstakra hluta. Áhugasamir eru hvattir til að skoða eignina vel með fagmönnum. 

Niðurlag: Frábærlega vel staðsett og skipulagt fjölskylduhús, örstutt í grunnskóla.

Nánari upplýsingar veitir: Halla Unnur Helgadóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 659-4044, tölvupóstur halla@gimli.is eða Elín Rósa Guðlaugsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 773-7126, tölvupóstur elinrosa@gimli.is

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1989
5.6 m2
Fasteignanúmer
2095270
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
20.000.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ásabraut 6
Bílskúr
Skoða eignina Ásabraut 6
Ásabraut 6
245 Sandgerði
148.8 m2
Einbýlishús
414
474 þ.kr./m2
70.500.000 kr.
Skoða eignina Kjóaland 14
Bílskúr
Skoða eignina Kjóaland 14
Kjóaland 14
250 Garður
124.5 m2
Parhús
312
561 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Vatnsnesvegur 13
Bílskúr
Opið hús:03. mars kl 17:30-18:00
Skoða eignina Vatnsnesvegur 13
Vatnsnesvegur 13
230 Reykjanesbær
144.1 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
312
506 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Sóltún 3
Bílskúr
Opið hús:01. mars kl 14:00-14:30
Skoða eignina Sóltún 3
Sóltún 3
230 Reykjanesbær
137.1 m2
Fjölbýlishús
311
510 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin