Fasteignaleitin
Skráð 15. sept. 2026

Fiskifjara 1

Atvinnuhúsn.Norðurland/Húsavík-640
273.9 m2
Verð
Tilboð
Fasteignamat
39.450.000 kr.
Brunabótamat
92.350.000 kr.
Mynd af Hermann Aðalgeirsson
Hermann Aðalgeirsson
Löggiltur fasteignasali
www.logeign.isEignalisti
Byggt 2018
Jarðhæð
Garður
Fasteignanúmer
2362478
Landnúmer
224386
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
Stál
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
05
Vatnslagnir
Talið í lagi
Raflagnir
Talið í lagi
Frárennslislagnir
Talið í lagi
Gluggar / Gler
Talið í lagi
Þak
Talið í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
nei
Upphitun
Hitaveita
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
TIL KAUPS EÐA LEIGU

Lögeign kynnir eignina Fiskifjara 1, 640 Húsavík, bil 105, fastanúmer 236-2478.

Fjölnota iðnaðarhúsnæði á hafnarsvæðinu á Húsavík. Eignin er 273,9 m² að stærð, með mikilli lofthæð, tveimur iðnaðarhurðum og góðri aðkomu. Húsnæðið býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika og mögulegt er að skipta því upp í fleiri en eitt rými eða gera milliloft.

Húsið var byggt árið 2018 og stálgrindarhús klætt með yleiningum og stendur á iðnaðar- og athafnalóð. Fimm bil eru í húsinu og er hið selda bil stærst þeirra. Mjög hátt er til lofts í rýminu og býður lofthæðin upp á möguleika á millilofti yfir hluta þess, sem gæti nýst sem geymslu-, vinnu- eða skrifstofurými.


Nánari lýsing:
Aðkoma að eigninni er frá Fiskifjöru og er rúmgott malarplan við húsið sem veitir gott athafnasvæði og greiða aðkomu fyrir stærri ökutæki.
Tvær iðnaðarhurðir með rafmagnsopnurum eru á eigninni og eru þær staðsettar á sitthvorum enda rýmisins. Önnur hurðin er sérstaklega stór og hentar vel þegar koma þarf stórum ökutækjum, tækjum eða öðrum fyrirferðarmiklum hlutum inn í húsið. Einnig er gönguhurð og gluggar á eigninni.
Gólf er steypt og eru hitalagnir í gólfi. Frárennslislagnir eru til staðar fyrir snyrtingu auk gólfniðurfalls. Eldvarnir eru í rýminu meðfram veggjum og upp við þak.
Í húsnæðinu eru nú léttir milliveggir sem auðvelt er að fjarlægja eða færa eftir þörfum. Rýmið getur því nýst sem eitt stórt iðnaðar- og geymslurými eða verið hólfaskipt eftir starfsemi og þörfum nýs eiganda. Stærð eignarinnar, mikil lofthæð og iðnaðarhurðir á báðum endum gera húsnæðið sérstaklega sveigjanlegt í notkun. Mögulegt er að skipta rýminu upp og nýta mismunandi hluta þess sjálfstætt, til dæmis fyrir eigin starfsemi og útleigu.
Lofthæðin gefur jafnframt möguleika á að koma fyrir millilofti yfir stórum hluta rýmisins og auka þannig nýtanlegt geymslu-, vinnu- eða skrifstofupláss verulega.

Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson lgf. í síma 865-7430 eða netfanginu Hermann@logeign.is og Hinrik Marel Jónasson Lund lgf., í síma 835-0070 eða netfanginu hinrik@logeign.is.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
23/11/20171.300.000 kr.33.891.000 kr.273.9 m2123.734 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (3)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Suðurgata 6
Bílskúr
Skoða eignina Suðurgata 6
Suðurgata 6
580 Siglufjörður
495.2 m2
Atvinnuhúsn.
53
151 þ.kr./m2
75.000.000 kr.
Skoða eignina Hlíðarvegur 42
Bílskúr
Skoða eignina Hlíðarvegur 42
Hlíðarvegur 42
625 Ólafsfjörður
248.2 m2
Einbýlishús
625
274 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Borgartún 22
Skoða eignina Borgartún 22
Borgartún 22
105 Reykjavík
265 m2
Atvinnuhúsn.
13
Fasteignamat 178.700.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Þjóðbraut 1
Skoða eignina Þjóðbraut 1
Þjóðbraut 1
300 Akranes
248 m2
Atvinnuhúsn.
1
496 þ.kr./m2
122.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin