Fasteignaleitin
Skráð 16. okt. 2024
Deila eign
Deila

Hverfisgata 106a

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
70.1 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
66.900.000 kr.
Fermetraverð
954.351 kr./m2
Fasteignamat
60.650.000 kr.
Brunabótamat
31.750.000 kr.
Mynd af Ragnar Kristján Guðmundsson
Ragnar Kristján Guðmundsson
Fasteignasali
Byggt 1950
Þvottahús
Garður
Útsýni
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2005334
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
4
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
ekki vitað / Þarfnast skoðunar
Raflagnir
Endurnýjaðar að hluta/Ástand ekki vitað
Frárennslislagnir
ekki vitað / Þarfnast skoðunar
Gluggar / Gler
endurnýjaðir gluggar og gler.
Þak
Endurnýjað/sjá yfirlýsingu seljanda.
Svalir
Út í garð.
Upphitun
Ofnar.
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
*Sjá húsfélagsyfirlýsingu frá 24.09.2024.
-Gler í gluggum svalahurða var ekki endurnýjað 2022. 
Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali hjá TORG fasteignasölu kynnir: Mikið endurnýjuð og vel skipulögð 2-3ja herbergja þakíbúð á fjórðu og efstu
hæð með suðursvölum í fjölbýlishúsi að Hverfisgötu 106a í Reykjavík. Að sögn seljanda er íbúðin og óskráð geymsluloft að hluta til undir súð og því gólfflötur
eignarinnar stærri en skráð stærð íbúðar. Eignin er skráð 70,1 fm. og skiptist í anddyri/hol, svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, borðstofu og stofu. Frá stofum
er útgengt á svalir sem snúa til suðurs með útsýni í sameiginlegan garð og miðborgina. Sér geymsluskápar á stigapalli ásamt því að frá stigapalli er aðgengi
stóru óskráðu geymslulofti í séreign sem nær yfir stóran hluta hæðarinnar. Þvottaaðstaða er innan íbúðar og í kjallara eignar. Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Ragnar fasteignasali í S: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is 

Sækja söluyfirlit HÉR

Samkvæmt seljanda voru eftirfarandi endurbætur og viðhald framkvæmt:

Íbúðin var mikið endurnýjuð að innan árið 2021. Þar má nefna að lagt var nýtt eikarparket á stofu og svefnherbergi og flísum í holi var skipt út fyrir parket sem flæðir nú um rými önnur en eldhús og bað. Dyrakarmar inn í stofu voru fjarlægðir sem stækkaði og bætti birtuflæði um íbúðina. Sett voru sérsmíðuð gerefti, sérsmíðaður fataskápur í svefnherbergi og íbúðin öll máluð að undanskildu eldhúsi og baðherbergi. Rafmagnstenglar voru endurnýjaðir að hluta.
Húsið hefur einnig fengið mikið viðhald að utan. Skipt var um þakjárn og þakpappa ásamt því að rennubönd og rennur á bak við húsið voru endurnýjaðar. Renna götumegin er steypt. Framkvæmdar voru steypuviðgerðir, málun og lagfæring á gafl hússins árið 2021. Allir gluggar íbúðar og í sameign voru endurnýjaðir 2022. Gluggar götumegin eru í samræmi við
staðla Reykjavíkurborgar varðandi hljóðvistarstyrk borgarinnar. Nýlega var settur upp dyrasími með myndavélakerfi.

Nánari lýsing:
Forstofa/anddyri: 
Eigninni fylgir sér fataskápur á stigapalli efstu hæð sameignar. Komið er inn á forstofu/gang sem sameinar öll rými íbúðarinnar. Á gólfum er
fallegt eikarparket sem flæðir yfir öll rými hæðarinnar að undanskildu eldhúsi og baðherbergi.
Eldhús: Smekkleg svört innrétting með bakaraofni, helluborði og harðviðar borðplötu. Dökkar flísar á gólfi og hvítar flísar á hluta veggja.
Svefnherbergi: Gott herbergi með góðum sérsmíðuðum loftháum fataskáp frá IK innréttingum og eikarparket á gólfi.
Stofa/borðstofa: Bæði stofan og borðstofan eru í stóru og björtu rými með eikarparketi á gólfi. Tvennar sjarmerandi hurðir eru út á suðursvalir sem snúa út í
sameiginlegan garð með fallegu útsýni yfir miðborgina. Auðvelt væri að búa til eitt til tvö auka herbergi í stofu með léttum vegg.
Baðherbergi: Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf og útbúið snotri hvítri innréttingu með handlaug og neðri skápum. Salerni, handklæðaofn, flísalögð sturta
og gluggi með opnanlegu fagi. Þvottaaðstaða er innan baðherbergis.
Sérgeymsla/þvottaherbergi: Eignin hefur sérafnotarétt að geymsluskápum á stigapalli 4. hæðar skv. eignaskiptayfirlýsingu. Frá stigapalli er aðgengi að stóru óskráðu geymslulofti í séreign sem nær yfir stóran hluta hæðarinnar. Sameiginlegt þvottaherbergi er á jarðhæð sameignar.
Garður/Lóð: Á bak við húsið er sameiginlegur garður. 

Um er að ræða fallega og vel skipulagða hæð á mjög vinsælum stað í miðborg Reykjavíkur þar sem  góðar samgönguæðar tengja miðbæinn við alla staði
borgarinnar og stutt er í alla helstu þjónustu. Einnig er göngufæri í leik- og grunnskóla. Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Ragnar fasteignasali í S: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is 

Fáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína hér.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Gjaldskrá birt með fyrirvara.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
20/01/201624.250.000 kr.32.000.000 kr.70.1 m2456.490 kr.
14/07/201521.800.000 kr.31.000.000 kr.70.1 m2442.225 kr.Nei
20/03/200715.100.000 kr.16.000.000 kr.70.1 m2228.245 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laufásvegur 17
Skoða eignina Laufásvegur 17
Laufásvegur 17
101 Reykjavík
86.6 m2
Fjölbýlishús
22
784 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Grettisgata 46
Skoða eignina Grettisgata 46
Grettisgata 46
101 Reykjavík
80.6 m2
Fjölbýlishús
312
805 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Vitastígur 9
Skoða eignina Vitastígur 9
Vitastígur 9
101 Reykjavík
57.6 m2
Fjölbýlishús
211
1127 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Sólvallagata 79
Skoða eignina Sólvallagata 79
Sólvallagata 79
101 Reykjavík
69.7 m2
Fjölbýlishús
211
1003 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin