Fasteignaleitin
Skráð 30. júní 2026

Hjallabrekka 20

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
268 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
168.000.000 kr.
Fermetraverð
626.866 kr./m2
Fasteignamat
154.950.000 kr.
Brunabótamat
123.750.000 kr.
Mynd af Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1969
Garður
Svalir
Bílskúr
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2061560
Landnúmer
114594
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Komin er móða á milli glerja og gluggar þarfnast viðhalds eða endurnýjar þar sem á við
Þak
Skipt var um þakjárn fyrir 10 árum,
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já, suð-vestur svalir
Upphitun
Hefðbundið ofnakerfi
Inngangur
Tveir inngangar
Magnús Már Lúðvíksson og Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX fasteignasala kynna í einkasölu:

Vel staðsett 268,0 fm. tveggja íbúða einbýlishús á tveimur hæðum, þar af er 41,2 fm. bílskúr. Auðvelt að samnýta báðar íbúðir sem eina heildareign. 

Í dag eru tvær íbúðir með sérinngangi í húsinu en húsið er skráð sem eitt fastanúmer.

Bókið skoðun hjá Magga í síma 699-2010 eða maggi@remax.is

Skipulag hússins. Aðalhæð er á efri hæðinni. Forstofa, hol/gangur, stofa með útgengi út á svalir. Eldhús, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Aðgengi frá forstofu niður teppalagðan stiga, þar er geymsla og stórt þvottahús: Hægt að ganga út um þvottahús að bakdyrum á bílskúrnum sem er stór og rúmgóður. Frá sameign með stiga, geymslu og þvottahúsið, er aðgengi inn í aukaíbúð sem staðsett er á jarðhæð. Þar er forstofa, opið hol/ gangur, baðherbergi, eldhús, stofa og tvö svefnherbergi, annað þeirra mjög lítið. 

Flutt var inn á efri hæð hússins árið 1968 og þar hefur verið búið síðan. Íbúð á neðri hæð var fullfrágengin 1978 og þar hefur verið búið síðan.

Viðhaldi hefur verið sinnt jafnt og þétt yfir árin, s.s. málning, múrviðgerðir og annað tilfallandi. T.d. voru múrviðgerðir í bílskúrsvegg tröppumegin sumarið 2020 og í framhaldinu var allt húsið málað að utan og lagt dren með efri hlið hússins. Grafið var niður á klöpp, veggur spúlaður og tjargaður, drendúkur lagður að veggnum og fyllt upp með möl. Trégirðing að framanverðu var endurnýjuð 2020 og máluð aftur 2026. Trégirðing í bakgarði endurnýjuð og máluð að hluta 2021 og 2026. Girðing með efri parti göngustígs endurnýjuð að hluta 2021 og máluð. Skipt var um bárujárn á þaki fyrir um 10 árum síðan og í kjölfarið var skorsteinn fjarlægður. Vorið 2026 var bílskúrinn sprungu- og múrviðgerður og allur málaður. Meðfram þakkanti var borið á allan hringinn waterproof fillcoat og múrsílan borið á allt bílskúrsþakið. Bílskúr var einnig málaður að innan.
Rafmagnstöflur í húsinu eru upprunalegar. Skipt hefur verið út hluta af ofnum en aðrir eru upprunalegir.

Það sem vitað er um viðhaldsþörf er að rennur eru orðnar ryðgaðar og götóttar og þarf að skipta út. Stóra rúðan í stofu á efri hæð er skemmd ásamt gluggalistum, þ.e. móða og útfellingar á milli glerja, lítil rúða í opnanlegu fagi í stofu á jarðhæð er brotin. Innanhús er kominn tími á endurnýjun á gólfefnum og innréttingum. 

Sjá hér 3D af efri hæð, sameign með þvottahúsi, geymlsu og bílskúr
Sjá hér 3d af aukaíbúð á jarðhæð, Hjallabrekka 20

Frekari upplýsingar veitir Magnús Már Lúðvíksson löggiltur fasteignasali í síma 699-2010 eða maggi@remax.is

Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1969
41.2 m2
Fasteignanúmer
2061560
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
14.800.000 kr.

Myndir (64)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sæbólsbraut 27
Skoða eignina Sæbólsbraut 27
Sæbólsbraut 27
200 Kópavogur
197.1 m2
Raðhús
624
791 þ.kr./m2
155.900.000 kr.
Skoða eignina Fossvogsvegur 26
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Fossvogsvegur 26
Fossvogsvegur 26
108 Reykjavík
242 m2
Fjölbýlishús
524
1384 þ.kr./m2
335.000.000 kr.
Skoða eignina Fossvogsvegur 18
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Fossvogsvegur 18
Fossvogsvegur 18
108 Reykjavík
241.8 m2
Fjölbýlishús
523
1385 þ.kr./m2
335.000.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 47C
Opið hús:23. júlí kl 17:30-18:00
Skoða eignina Hjallabraut 47C
Hjallabraut 47C
220 Hafnarfjörður
158.3 m2
Raðhús
423
1068 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin