Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Lifum Heima fasteignasala kynna:
Atvinnu- og iðnaðarhúsnæði með óskráðu millilofti, fallega innréttað, á Esjumelum í Mosfellsbæ.
Skráð og birt stærð jarðhæðar er 206,5 fm en til viðbótar er u.þ.b. 130 fm milliloft, samtals stærð gólfflata því um 336,5 fm alls.
** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / hrannar@lifumheima.is
Húsið er byggt 2020, staðsteypt, einangrað að utan, álklætt og með stóru steyptu bílaplani, sérafnotareitur sem afmarkast af breidd bils og nær u.þ.b. 10 metra út frá húsinu.
Lofthæð er um 4 metrar við útveggi og 9 metrar við mæni í grunninn, innkeyrsluhurð 3,95 m á hæð og 3,9 metrar á breidd.
Jarðhæðin er með epoxy á gólfum, baðherbergi með sturtu, þvottahús/geymsla, stór og bjartur salur, led lýsing í loftum og extra hátt til lofts á 1/3 hluta bils.
Útgengt er út á svalir til norðurs úr jarðhæð.
130 fm milliloftið inniheldur eldhús/skrifstofu, kaffiaðstöðu, miðjurými ásamt geymslu og gestasnyrtingu. Timburstigi er milli hæða.
Eignin virðist vera fullbúin en selst eins og hún er skráð, byggingarstigi 3, matsstigi 8, og mun kaupandi þurfa að klára lokaúttekt sjálfur.
Seljandi eignaðist eignina í skuldaskilum og þekki ekki til hennar utan ofangreindrar lýsingar.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lifum Heima fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Nánari upplýsingar veita:
Hrannar Jónsson löggiltur fasteignasali / s.899-0720 / hrannar@lifumheima.is
Lifum heima fasteignasala / s.463 3333 / lifumheima@lifumheima.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lifum Heima fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.