Fasteignaleitin
Skráð 17. nóv. 2026

Grensásvegur 1 A - 513

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
89.9 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
Verð
91.900.000 kr.
Fermetraverð
1.022.247 kr./m2
Brunabótamat
60.100.000 kr.
Byggt 2025
5. hæð
Svalir
Pallur
Hleðslustöð
Fasteignanúmer
25222061
Húsgerð
Fjölbýlishús

Aldir Fasteignir kynnir til sölu glæsilega fullbúna nýlega íbúð við Grensásveg 1A með glæsilegu útsýni.  

Nánari lýsing íbúðar 513
Stórglæsileg og vel skipulögð 3ja herbergja 89,9 fm íbúð á 5. hæð með gólfsíðum gluggum og hita í gólfum.
Komið er inn í forstofu. Stórt og bjart opið rými sem er eldhús, borðstofa og stofa með fallegum gólfsíðum gluggum. Skápur er við forstofuna. Rúmgott bjart eldhús með eyju og stofa með útgengi á svalir. Stórt hjónaherbergi og inn af því rúmgott fataherberbergi. Eitt barnaherbergi með skápum og framan við það gott vinnurými. Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, innrétting og sturta sem gengið er inní. Innaf eldhúsi er rúmgott þvottahús/búr. Íbúðinni fylgir sérgeymsla í kjallara. 
Myndir eru úr sambærilegri íbúð.
 
Frekari upplýsingar veita: 
Gunnlaugur A. Björnsson, gab@aldirfasteignir.is, 617-5161 
Sigríður Lind Eyglóardóttir, sigridur@aldirfasteignir.is, 899-4703 
Anna Sigurðardóttir, anna@aldirfasteignir.is, 898-2017 
Finnbogi Hilmarsson, finnbogi@aldirfasteignir.is, 895-1098 


 
Einstök staðsetning við Laugardalinn þar sem er mjög mikið úrval verslanna og þjónustu í Skeifunni, Glæsibæ, Ármúla og víðar.
Þar má telja læknisþjónustu, heilsugæslu, matvöruverslanir, sérverslanir, veitingastaði, líkamsrækt, samgöngutengingar og  grunn- og framhaldsskólar í göngufæri. 
Stutt lýsing Grensásvegs 1 A.
Húsið er 76 íbúða vandað 7. hæða fjölbýlishús, hannað af Archus og Rýma arkitektastofum. Archus sá einnig um alla innanhúshönnun og efnisval. Allar íbúðir eru með svölum eða verönd og með stórum gólfsíðum björtum gluggum.  Þær eru afhentar fullbúnar með parketi, nema votrými sem eru flísalögð.   Í hjólageymslu eru stæði fyrir 400 reiðhjól.  Allar innréttingar eru sérsmíðaðar og koma frá Parka.  Allt parket á gólfum er vandað harðparket. Innfelld LED lýsing í loftum. Gólfhiti er í öllum  íbúðum.
Glæsileg Bosch tæki í öllum íbúðum, spanhelluborð, vandaður ofn, innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja ásamt upphengdum háf.  Svartur yfirfelldur eldhúsvaskur með svörtu blöndunartæki frá Hansgrohe. Baðherbergi flísalögð með 60x60 cm flísum frá gólfi til lofts. Innbyggð blöndunartæki í sturtu. Svalahandrið úr gleri.  LAUS STRAX VIÐ KAUPSAMNING
Við húsið eru ekki bílastæði, en í bílakjallara eru 183 bílastæði sem verða til útleigu til lengri eða skemmri tíma, en einnig verður hægt að greiða fyrir stæði eftir tímamæli innan dagsins. Inn- og útkeyrsla er Skeifumegin við húsið. Allar greiðslur fyrir stæði fara í gegnum app sem gerir allt utanumhald einfalt og auðvelt.  Í fullbúnum bílakjallara eru hraðhleðslustöðvar fyrir rafbíla. 
Deilibílar. 
Deilibílar verða hluti af nýtískulegu og vistvænu umhverfi á Grensásvegi 1. Þeir verða aðgengilegir fyrir íbúa og atvinnustarfsemi á lóðinni.   Allar fermetratölur íbúða eru birtar með fyrirvara. Eignaskiptayfirlýsing gildir. 
Allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu Aldir Fasteignir, Hlíðasmára 14 sími 530-6500 eða á gab@aldirfasteignir.is  Heimasíðu verkefnisins má finna HÉR                      

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Aldir fasteignir bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (17)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laugarnesvegur 89
DJI_0204.JPG
Laugarnesvegur 89
105 Reykjavík
87,4 m2
Fjölbýlishús
211
889 þ.kr./m2
77.700.000 kr.
Skoða eignina Drápuhlíð 47
Skoða eignina Drápuhlíð 47
Drápuhlíð 47
105 Reykjavík
87,3 m2
Fjölbýlishús
312
789 þ.kr./m2
68.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg (124)
Hleðslustöð
Opið hús:19. nóv. kl 17:00-17:30
Leifsgata24_aðalmynd.png
Skoða eignina Laugaborg (124)
Laugaborg (124)
105 Reykjavík
81,5 m2
Fjölbýlishús
312
975 þ.kr./m2
79.500.000 kr.
Skoða eignina Hrísmóar 5
3D Sýn
Efsta hæð
Skoða eignina Hrísmóar 5
Hrísmóar 5
210 Garðabær
115,2 m2
Fjölbýlishús
312
737 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin