VALBORG fasteignasala og ráðgjöf kynnir í einkasölu einbýlishúsið Borgarhraun 9, 810 Hveragerði.
Fimm herbergja einbýlishús ásamt tvöföldum bílskúr.
Eignin er samtals 169.0 m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Eignin er timburhús, byggt árið 1975, bílskúr úr timbri byggður árið 1988. Íbúðarhús 120.0 m² og bílskúr 49.0 m².
Húsið sjálft er 120m² og telur forstofu, eldhús, fjögur svefnherbergi, stofu/borðstofu, tvö baðherbergi, þvottahús og geymslu.
Bílskúrinn er tvöfaldur að breidd, skráður 49m² að stærð. Sjá staðsetningu hér:Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.Lýsing eignar:Anddyri með dúk á gólfi, fataskápur yfir heilan vegg. Þar er tvöfaldur fataskápur.
Eldhús með góðu skápaplássi. Efri og neðri skápar og skúffur, eldavél og bakarofn, vifta, gert ráð fyrir ísskáp í innréttingu. Borðkrókur við glugga.
Stofa/borðstofa. Gluggar til suðurs og hurð út á hellulagða verönd á suðurhlið stofunnar. Þar er sólríkt og skjólsælt.
Baðherbergi dúkur á gólfi og veggjum. Innrétting með handlaug og skápaplássi. Salerni, sturta og baðkar. Gluggi til norðurs.
Gestasnyrting er innaf anddyri, upphengt salerni og handlaug, gluggi, dúkur á gólfi.
Hjónaherbergi dúkur á gólfi, áttfaldur fataskápur.
Svefnherbergi I dúkur á gólfi, þrefaldur fataskápur.
Svefnherbergi II dúkur á gólfi, tvöfaldur fataskápur.
Svefnherbergi III dúkur á gólfi.
Þvottahús er inn af eldhúsi. Þar er útidyrahurð er snýr til vesturs og hefur hún verið notuð sem aðalinngangur. Þar er innrétting með góðu skápaplássi, skolvaskur og gert ráð fyrir þvottavél. Málað gólf.
Búr/geymsla er innaf þvottahúsi, málað gólf, hillur og gluggi. Lúga er uppá loft í búri/geymslu. Þar er útidyrahurð er snýr til vesturs og hefur hún verið notuð sem aðalinngangur.
Sérstæður tvöfaldur 49m²
bílskúr. Þar er málað gólf og gönguhurð er á aftanverðum bílskúr. Tvær bílskúrshurðar, önnur þeirra er með mótor, fjórfaldur skápur. Loft í bílskúr er ullað og plastað.
Eignin er timburhús á einni hæð klædd að utan með standandi klæðningu, járn á þaki.
Hellulagt að húsi og meðfram húsi.
Gólfefni hússins eru dúkur, korkur og teppi.
Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is. Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.100,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.