Baldur fasteignasali - Sími 450-0000 kynnir: Björt og vel skipulögð 5 herbergja fjölskylduíbúð í grónu og fjölskylduvænu hverfi í Árbænum. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð á síðustu árum og hentar einstaklega vel fjölskyldum sem vilja rúmgott heimili á góðum stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
Eldhús endurnýjað um 2020
Nýleg rafmagnstafla (ca. 2020)
Þak yfirfarið og málað árið 2019
Möguleiki á fjórða svefnherberginu
Rúmgóðar svalir
Sérgeymsla
Stór sameiginlegur garður með leiktækjum
Slitsterkt AC4 Wineo parket á gólfumNánari lýsing:Forstofa er með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Eldhús er með fallegri endurnýjaðri innréttingu frá um 2020, góðu skápa- og vinnuplássi og flísum á gólfi.
Stofa og borðstofa eru rúmgóð og björt með parketi á gólfi og útgengi út á rúmgóðar svalir.
Hjónaherbergi er rúmgott með stórum fataskápum og parketi á gólfi.
Tvö barnaherbergi eru bæði með fataskápum og parketi á gólfi.
Aukaherbergi er inn af stofu með glugga og nýtist vel sem skrifstofa, sjónvarpsherbergi eða fjórða svefnherbergi.
Baðherbergi er með snyrtilegri innréttingu, baðkari með sturtuaðstöðu og flísum á gólfi.
Sérgeymsla í sameign er 4,80 fermetrar. Auk þess er sameiginlegt þvottahús ásamt hjóla- og vagnageymslu.
Húsið og nærumhverfiðSameiginlegur garður er stór og gróinn með leiktækjum fyrir börn og góðri aðstöðu til útiveru. Staðsetning eignarinnar er einstaklega fjölskylduvæn þar sem örstutt er í leikskóla, grunnskóla, verslanir, sundlaug, heilsugæslu, íþróttaaðstöðu og aðra helstu þjónustu. Þá eru góðar almenningssamgöngur og greiður aðgangur að helstu stofnbrautum.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / Beinn sími 450-0000Skoða meðmæli - Verðmat fasteigna - Lúxus fasteignir - Greiðslumat.is - Hvað getur þú keypt