Fasteignaleitin
Skráð 18. okt. 2024
Deila eign
Deila

Rauðamýri 3

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
107.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
79.500.000 kr.
Fermetraverð
740.223 kr./m2
Fasteignamat
67.600.000 kr.
Brunabótamat
54.700.000 kr.
Mynd af Bjarni Blöndal
Bjarni Blöndal
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2006
Þvottahús
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2290693
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Hæðir í húsi
3
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
já, tvennar
Upphitun
hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
STÓRGLÆSILEG 3JA HERBERGJA ENDAÍBÚÐ Á EFSTU HÆÐ Í LITLU FJÖLBÝLI. TVENNAR SVALIR OG AUKIN LOFTHÆÐ Í ÍBÚÐ. Gengið er inn um sérinngang af svölum inn í íbúðina.

Útsýnið frá íbúðinni er einstaklega glæsilegt, Reykjavík, Snæfellsjökull, Faxaflói og Esjan eru þar aðal útsýnispunktar. Lofthæðin er mjög mikil í stofunni, stórir gluggar með strimlagluggatjöldum sem fylgja. Hvíttað plankaparket á alrými og herbergjum, flísar á votrýmum. Gólfhiti er í allri íbúðinni.

Allar nánari upplýsingar veitir Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali í síma 662-6163 eða bjarni@remax.is 

Nánari lýsing:
Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með ljósum flísum á gólfi, góður fataskápur.
Stofa/borðstofa: Stofa og borðstofa eru samliggjandi með opið yfir í eldhúsið, parket á gólfi. Einstaklega mikil lofthæð er í rýminu með vönduðum innbyggðum ljósum. Í stofu eru stórir gluggar ásamt „panorama“ glugga með stórglæsilegu útsýni til suðurs og vesturs. Útgengi úr stofu á skjólgóðar svalir sem snúa í suður, yfir á Úlfarsfellið, Reykjavík og Faxaflóa. Eldhús: Eldhúsið er opið yfir í stofuna, stúkað af með eyjuð frá stofunni, parket á gólfi. Vönduð HTH eikarinnrétting með góðu skápaplássi og góðum hirslum í eyjunni, frá eldhúsi er útgengt á svalir til norð vesturs.
Baðherbergi: Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með glugga í átt að Lágafelli og Esjunni, bæði baðkar og sér sturta frá Tengi, góð eikarinnrétting.
Hjónaherbergi: Hjónaherbergið er mjög rúmgott með parketi á gólfi og tvöföldum góðum fataskápum, gluggi sem snýr í suður í átt að Úlfarsfelli.
Barnaherbergið: Barnaherbergi er rúmgott með parketi á gólfi og fataskáp, gluggi sem snýr í norður í átt að Esju, Mosfellsbæ og Lágafelli.
Þvottahús: Þvottaherbergið er með innréttingu, góð vinnuhæð og skápapláss, skolvaskur, flísar á gólfi.
Geymsla: 9fm sér geymsla er í sameign.
Bílastæði: næg sameiginleg stæði á lóðinni, rafmagnshleðslustaur.
Sameign: Sameign hússins er mjög snyrtileg með nýlegu svörtu teppi á stigangi og flísum. Hjóla og vagnageymsla í kjallara.

Gróin sameiginleg lóð með góðu leiksvæði fyrir börnin. Skólar, leikskólar og sundlaug eru í göngufæri, undirgöng liggja undir Vesturlandsveg. Stutt í skemmtilegar gönguleiðir úti í náttúrunni. Góð tenging við stofnbraut til Reykjavíkur.

Allar upplýsingar um eignina veitir Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali í síma 662 6163 eða bjarni@remax.is. 
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunarskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. RE/MAX fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlufall af fasteignamati. 1.Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal. 3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. 4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá 69.900kr
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
23/11/201221.600.000 kr.23.200.000 kr.107.4 m2216.014 kr.
19/03/201221.600.000 kr.23.000.000 kr.107.4 m2214.152 kr.
23/11/201021.950.000 kr.21.000.000 kr.107.4 m2195.530 kr.Nei
02/11/200723.320.000 kr.25.200.000 kr.107.4 m2234.636 kr.Nei
30/01/200712.000.000 kr.23.700.000 kr.107.4 m2220.670 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bjarkarholt 17
Bílastæði
Skoða eignina Bjarkarholt 17
Bjarkarholt 17
270 Mosfellsbær
96.1 m2
Fjölbýlishús
312
800 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Skoða eignina Bjarkarholt 17 - 406
Bílastæði
Bjarkarholt 17 - 406
270 Mosfellsbær
82.6 m2
Fjölbýlishús
312
931 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Skoða eignina Bjarkarholt 17 - 305
Bjarkarholt 17 - 305
270 Mosfellsbær
96.1 m2
Fjölbýlishús
312
800 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Skoða eignina Bjarkarholt 19
Bílastæði
Skoða eignina Bjarkarholt 19
Bjarkarholt 19
270 Mosfellsbær
99.1 m2
Fjölbýlishús
312
796 þ.kr./m2
78.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin