Fasteignaleitin
Skráð 16. júlí 2026

Lundeyjarsund 9

SumarhúsSuðurland/Selfoss-805
46.2 m2
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
24.900.000 kr.
Fermetraverð
538.961 kr./m2
Brunabótamat
24.750.000 kr.
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
22075211
Húsgerð
Sumarhús
Inngangur
Sérinngangur

Heimili fasteignasala kynnir Lundeyjarsund 9. Lítið sætt sumarhús í Hraunborgum í Grímsnes-og Grafningshreppi. Laus til afhendingar við kaupsamning. 
Húsið er á 5000 fm leigulóð í eigu Sjómannadagsráðs og skiptist í rúmgott opið rými með stofu, eldhúsi og borðstofu. Tvö svefnherbergi, snyrtingu, forstofu og svefnloft. 

Bókið skoðun HÉR.
Nánari lýsing: 

Forstofa: rúmgóð. Flísar á gólfi. Fatahengi. 
Snyrting: salerni og handlaug, opnanlegur gluggi,geymsluhillur, flísar á gólfi. Ekki sturta í húsinu.
Herbergi I: stæði fyrir tvíbreitt rúm, nettur fataskápur. Gluggi. Parket á gólfi. 
Herbergi II: með tvær kojur. Gluggi. Parket á gólfi. 
Eldhús: ágæt innrétting með góðu skápaplássi. Eldavél með tveimur hellum.
Stofa/borðstofa: rúmgott, bjart og notalegt rými opið við eldhús. Útgengt út á verönd til suðurs. Parket á gólfi. 
Svefnloft: yfir ca helming hússins. Að svefnlofti er góður stigi með handriði. þar er svefnpláss fyrir 2-3. Opnanlegur gluggi. 

Rekstarkostnaður:
Lóðarleiga:  kr 134.343 (2025)
Félag sumarbústaðareigenda: kr 15.300

Húsið er hitað með rafmagni. Þar er kalt vatn og hitakútur. Lóðin er skjólgóð og gróðursæl, á lóðinni er lítill geymsluskúr. Góð aðkoma, lóð afmörkuð með góðu hliði og næg bílastæði. Hitaveita er á svæðinu og er komin að lóðarmörkum fyrir þessa eign. Svæðið er lokað með rafmagnshliði yfir vetrarmánuðina. Þjónustumiðstöð í Hraunborgum, sundlaug og 9 holu golfvöllur eru á svæðinu. Stutt er í aðra þjónustu.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Sigríður Lind Eyglóardóttir löggiltur fasteignasali, sigridur.lind@heimili.is / 8994703.


 


Heimili fasteignasala og Landmark fasteignamiðlun eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteigasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.  

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Heimili fasteignasala
http://www.heimili.is

Myndir (22)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hnjúkamói 9, íbúð 0204
Hnjúkamói 9, íbúð 0204
815 Þorlákshöfn
60.3 m2
Fjölbýlishús
211
837 þ.kr./m2
50.500.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 14 íb. 203
Hnjúkamói 14 íb. 203
815 Þorlákshöfn
50.9 m2
Fjölbýlishús
21
862 þ.kr./m2
43.900.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 14 íb. 303
Hnjúkamói 14 íb. 303
815 Þorlákshöfn
50.9 m2
Fjölbýlishús
22
882 þ.kr./m2
44.900.000 kr.
Skoða eignina Þórsstígur 27
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Þórsstígur 27
Þórsstígur 27
805 Selfoss
165.6 m2
Sumarhús
534
881 þ.kr./m2
145.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin