Nýtt á skrá! Álftamýri 40 Reykjavík - Vel skipulögð og frábærlega staðsett 2ja herb. íbúð!
Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir góða og vel skipulagða tveggja herbergja íbúð á 3. hæð í vel viðhöldnu fjölbýlishúsi við Álftamýri 40 í Reykjavík. Íbúðin er alls 60,3 fermetrar að stærð og þar af er geymsla 5,5 fermetrar. Rúmgóð stofa með gluggum til suðurs. Útgengi svalir til suðurs sem snúa inn í bakgarð hússins.
Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin. M.a. var þakið endurnýjað á árunum 2006-2007. Árið 2014 voru skólplagnir og brunnar endurnýjaðar innan lóðar og drenlagnir lagðar. Sama ár voru stéttar endurnýjaðar með snjóbræðslu og innkeyrsla og bílaplön malbikuð. Á árunum 2017-2018 var unnið við múrviðgerðir og málun á húsinu ásamt því að skipta var um alla glugga í blokkinni og svalahurðir. Þá er auk þess búið að endurnýja dyrasímakerfi hússins, brunavarnahurðir, mála og skipta um teppi á stigagangi.
Snyrtilegt rúmgott sameiginlegt þvottaherbergi á jarðhæð hússins og hjóla- og vagnageymslu. Hellulögð stétt fyrir framan hús með snjóbræðslu og malbikuð sameiginleg bílastæði.
Um er að ræða frábæra staðsetningu við Álftamýri 40 miðsvæðis í Reykjavík þar sem stutt er í alla verslun og þjónustu. Leikskóli, grunnskóli og íþróttasvæði í göngufjarlægð. Stutt í allar helstu stofnæðar höfuðborgarsvæðisins.
Nánari lýsing: Forstofa/hol: Með parketi á gólfi og skápum. Stofa: Með parketi á gólfi og gluggum til suðurs. Útgengi á svalir frá stofu. Svalir: Snúa til suðurs inn í bakgarð hússins. Eldhús: Með dúk á gólfi og viðar eldhúsinnréttingu. Eldavél, borðkrókur og gluggi til norðurs. Svefnherbergi: Með dúk á gólfi, skápum og glugga til suðurs. Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtutækjum, innrétting við vask, salerni og gluggi til norðurs. Geymsla: Er 5,5 fermetrar og er staðsett á jarðhæð hússins.
Þvottaherbergi: Er sameiginlegt á jarðhæð hússins. Sér tenglar fyrir hverja íbúð fyrir þvottavél og þurrkara. Málað gólf, vinnuborð og gluggi til vesturs. Hjóla- og vagnageymsla: Með máluðu gólfi.
Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.