Guðrún Lilja og Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltir fasteignasalar og RE/MAX fasteignasala kynna í einkasölu:
Vel staðsett eign við Barmahlíð 41, 105 Reykjavík.
Tveggja herbergja 71,3 fm. íbúð í kjallara sem hefur verið endurnýjuð öll að mestu leiti árið 2019. Ný gólfefni, nýjar hurðar og eldhúsinnrétting ásamt eldvarnarhurð sett upp. Flestir gluggar íbúðar og baðherbergi þess var endurnýjað á sama tíma. Nýlega voru gólfefni endurnýjuð að nýju.
Nánari upplýsingar og bókun í skoðun veitir Guðrún Lilja lögg.fasteignasali í síma 867-1231 eða með tölvupósti gudrunlilja@remax.isHúsið er vel við haldið og með söluyfirliti fylgir skjal með viðhaldsögu hússins. Helst ber að nefna að húsið var endursteinað árið 2008 og það er búið að endurnýja frárennsli- og neysluvatnslagnir. Það var gert árið 2019.
Smelltu á linkinn til að skoða íbúðina í 3D
Nánari lýsing: Sameiginlegur inngangur. Komið er í hol sem aðskilur eldhús frá öðrum rýmum. Eldhúsið er stórt og bjart með innréttingu meðfram einum vegg og borðkrók með glugga í enda þess. Gott skápa- og vinnupláss. Helluborð með kolasíu viftu þar fyrir ofan og vask þar við hlið. Gert er ráð fyrir frístandandi ísskáp og uppþvottavél. Bökunarofn er í vinnuhæð. Herbergin eru tvö inn af gangi frá eldhúsinu, þau eru bæði mjög stór og rúmgóð, eitt stórt svefnherbergi og ein stór stofa. Baðherbergið er með flísum á gólfi og meðfram sturtunni og upp meðfram veggnum við upphengda salernið. Baðinnrétting er með handlaug og tveimur skúffum. Speglaskápur er þar fyrir ofan og handklæða ofn á veggnum þar á móti. Lítil geymsla í sameign hússins fylgir eigninni ásamt aðgengi að sameiginlegu þvottahúsi.
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.