Fasteignaleitin
Skráð 13. maí 2024
Deila eign
Deila

Túngata 63

EinbýlishúsSuðurland/Eyrarbakki-820
136.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
52.900.000 kr.
Fermetraverð
388.399 kr./m2
Fasteignamat
36.700.000 kr.
Brunabótamat
56.050.000 kr.
Mynd af Loftur Erlingsson
Loftur Erlingsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1964
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2200337
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Ný rafmagnstafla
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Endurnýjað á undanförnum árum
Þak
Endurnýjað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Pallur með skjólveggjum
Lóð
36,21
Upphitun
Hitaveita/ofnar
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali s.896 9565 og Hús fasteignasala kynna í einkasölu:
ÍBÚÐ Á JARÐHÆÐ Í ÞRÍBÝLI
Góð 3herb. 104,2fm
íbúð á jarðhæð með 32fm stúdíóíbúð í bílskúr til útleigu, samtals 136,2fm að stærð.
Möguleiki á einu svefnherbergi til viðbótar.
Á undanförnum árum hafa gluggar verið endurnýjaðir, einnig þak hússins, baðherbergið, rafmagnstaflan í íbúðinni og varmaskiptirinn svo eitthvað sé nefnt.

Túngata 63 á Eyrabakka er reisulegt hús sem samanstendur af kjallara, jarðhæð, efri hæð og risi. Þrjár íbúðir eru í húsinu og frístandandi tvöfaldur bílskúr við hlið þess, og fylgir helmingur hans hvorri hæð hússins. 
Komið er inn í netta flísalagða forstofu, gengt niður í kjallara úr henni hvar finna má sameiginlegt þvottahús hússins og ágætt sameiginlegt geymslupláss, auk þess sem vatnsinntök og varmaskiptir eru staðsett þar.
Úr forstofu er komið í parketlagt miðrými og gengt í önnur rými íbúðarinnar úr því. Stofan er einnig parketlögð og gengt út á stóran pall með skjólveggjum úr henni, - borðstofuendi hennar með útskotsglugga og einfalt að stúka af og breyta í þriðja svefnherbergið. 
Flísalagt eldhús með vandaðri innréttingu frá Fagus, flísum milli skápa og skúffukerfi í neðri skápum að mestu, ágætis borðkrókur. Svefnherbergin eru tvö og einnig parket á gólfum þar. Annað þeirra sínu stærra og með góðu skápaplássi. Baðherbergið í nettara lagi en nýlega endurnýjað. Þar er flísalagt gólf og upp á veggi, hornsturta með glerhurðum, vaskur og skápur. Kynding íbúðarinnar er lokað ofnakerfi með Danfoss krönum, lagnir í utanáliggjandi stokk niður við gólf.  Að utan er húsið klætt með Steni klæðningu, gluggar úr tré og voru endurnýjaðir fyrir fáeinum árum og nýlegt bárujárn á þaki. Sameiginleg lóðin er nokkuð stór en lokaður pallur fylgir íbúðinni sem fyrr segir.   Bílskúrinn er frístandandi og tvískiptur en í opinberum skrám er hann skráður á byggingarstigi 1, - byggingarleyfi.  Í þeim helmingi sem tilheyrir íbúðinni er innréttuð stúdíóíbúð sem hentar vel til útleigu.
Sannarlega eign sem vert er að skoða. 

Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali veitir allar nánari upplýsingar og sýnir eignina.
S. 896 9565    loftur@husfasteign.is  

 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna:
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, (0,4% fyrstu kaup)  lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
 
Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Hús fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita jafnvel til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
11/05/202122.050.000 kr.33.500.000 kr.136.2 m2245.961 kr.
16/11/201713.750.000 kr.22.350.000 kr.105.1 m2212.654 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
32 m2
Fasteignanúmer
2200337
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Matsstig
8 - Í notkun

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Álalækur 17
Skoða eignina Álalækur 17
Álalækur 17
800 Selfoss
97.3 m2
Fjölbýlishús
413
565 þ.kr./m2
55.000.000 kr.
Skoða eignina Grashóll 0
Skoða eignina Grashóll 0
Grashóll 0
805 Selfoss
109 m2
Einbýlishús
413
504 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Skoða eignina Brekastígur 10
Skoða eignina Brekastígur 10
Brekastígur 10
900 Vestmannaeyjar
158.5 m2
Einbýlishús
514
327 þ.kr./m2
51.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache