Fasteignaleitin
Skráð 25. júní 2026

Desjamýri 4

Jörð/LóðHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
2,000 m2
Verð
Tilboð
Fasteignamat
23.250.000 kr.
Mynd af Viðar Marinósson
Viðar Marinósson
Löggiltur fasteignasali
Fasteignanúmer
2330965
Landnúmer
215847
Húsgerð
Jörð/Lóð
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
100
Fjárfestar :
Lind fasteignasala ehf. kynnir til sölu fyrir fjárfesta, þróunarverkefnið Desjamýri 4, 270 Mosfellsbæ.
Um er að ræða nýtt iðnaðarhúsnæði sem er á undirbúnings- og framkvæmdastigi og mun samanstanda af 16 iðnaðarbilum. Húsið skiptist í sextán einingar, átta hvoru megin við langvegg í miðju hússins. Byggingin verður á tveimur hæðum, þar sem jarðhæð er um 1.000 fm og efri hæð um 1.000 fm, samtals um 2.000 fm.
Stærð lóðar er 3.360 fm auk um 700 fm lands til suðurs. Hvert bil verður að jafnaði um 125 fm að stærð, þar af um 62,5 fm á jarðhæð og um 62,5 fm á millilofti.
TIL GREINA KEMUR AÐ SELJA LÓÐINA MEÐ TEIKNINGUM OG ÞEIM FRAMKVÆMDUM SEM KOMNAR ERU.

Fjárfestum býðst að kaupa lóðina, samþykktar teikningar og þær framkvæmdir sem þegar hafa verið unnar á lóðinni. Samhliða kaupum verður gerður verktakasamningur við seljanda, sem er byggingarmeistari, um fullnaðarfrágang verkefnisins. Áætlaður framkvæmdatími til afhendingar fullbúins húsnæðis er um tvö ár.
Áætlað fermetraverð fullbúins húsnæðis er um kr. 290.000 á fermetra án vsk í heildsölu. ( vsk verður endurgreiddur )
 Allar nánari upplýsingar og ráðgjöf um eignina veitir Ísak V. Jóhannsson  sími:822-5588 isak@fastlind.is 
Byggingarlýsing:
Húsið verður reist úr steyptum einingum.
Utan á húsi verður einangrun og klæðning úr liggjandi bárujárni.

Gluggar verða timburgluggar að innan og álklæddir að utan, hvítmálaðir.
Iðnaðarhurðir verða frá Vögnum og Þjónustu ehf.
Milliveggir verða steyptir.
Milliloft verða úr timbureiningum með tréstiga upp á loft.
Gólf á jarðhæð verða máluð grá.
Sér rafmagnstafla og rafmagnsmælir verða í hverju bili.
Lýsing verður með LED ljósum.
Vatnslagnir verða úr stáli.
Niðurföll í gólfum verða tengd olíuskilju.
Salerni verður í hverju bili.
Plan framan við húsið verður steypt eða malbikað með snjóbræðslukerfi sem nær um 5 metra frá húsvegg.
Um er að ræða áhugavert fjárfestingartækifæri á góðum og söluvænum stað í ört vaxandi atvinnusvæði Mosfellsbæjar.
 
 Allar nánari upplýsingar og ráðgjöf um eignina veita Ísak V. Jóhannsson og Viðar Marinósson  sími: 822-5588 isak@fastlind.is 

 
 
                                                                
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (6)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Úugata 72
Bílskúr
Skoða eignina Úugata 72
Úugata 72
270 Mosfellsbær
209 m2
Parhús
524
694 þ.kr./m2
145.000.000 kr.
Skoða eignina Úugata 74
Bílskúr
Skoða eignina Úugata 74
Úugata 74
270 Mosfellsbær
209 m2
Parhús
524
694 þ.kr./m2
145.000.000 kr.
Skoða eignina Úugata 6
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Úugata 6
Úugata 6
270 Mosfellsbær
100.9 m2
Fjölbýlishús
312
860 þ.kr./m2
86.800.000 kr.
Skoða eignina Úugata 8
Bílastæði
Skoða eignina Úugata 8
Úugata 8
270 Mosfellsbær
164.3 m2
Fjölbýlishús
54
778 þ.kr./m2
127.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin