Fasteignaleitin
Opið hús:14. maí kl 14:00-14:30
Skráð 10. maí 2026

Álfheimar 28

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
116.5 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
75.900.000 kr.
Fermetraverð
651.502 kr./m2
Fasteignamat
81.000.000 kr.
Brunabótamat
51.750.000 kr.
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2021108
Landnúmer
105204
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
04
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ástand óþekkt
Raflagnir
Ástand óþekkt
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Búið er að endurnýja 4 glugga af 7 2025-2026
Þak
Endurnýjað, sjá nánari lýsingu í ástandsyfirlýsingu seljanda
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já til suð-vesturs
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Rúmgóð 4 herbergja íbúð í fjölskylduvænu hverfi við Laugardalinn
Tinna Bryde löggiltur fasteignasali og Háborg fasteignasala kynna 116,5 fm íbúð á 4. hæð við Álfheima 28. Um er að ræða bjarta og rúmgóða íbúð með svölum til suð- vesturs, góðu skipulagi og einstaklega fjölskylduvænni staðsetningu í grónu hverfi.

-  Frábær staðsetning
-  Töluverðar framkvæmdir á húsinu að mestu lokið
-  Rúmgóð herbergi 
-  Hleðslustöðvar á bílastæði


Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða á tinna@haborg.is

Eignin er skráð 116,5 fm samkvæmt HMS, þar af er 8,5 fm sérgeymsla.
Nánari lýsing:
Forstofa: Flísalögð forstofa 
Stofa: Rúmgóð og björt stofa með parketi á gólfi og útgengi á svalir. Fallegt alrými með góðu flæði og mikilli birtu.
Svalir: Svalir til suð- vesturs með útgengi bæði úr stofu og herbergi.
Eldhús: Rúmgott eldhús með hvítri innréttingu og eldhúseyju. Gott vinnupláss og notalegt rými fyrir matargerð og samveru.
Herbergi: Þrjú rúmgóð herbergi með parketi á gólfi. Fataherbergi er í einu herbergjanna og útgengi á svalir.
Baðherbergi: Baðherbergi með baðkari, innréttingu og tengi fyrir þvottavél.
Sérgeymsla í sameign í kjallara og einnig er geymslurými innan íbúðar. 
Sameiginleg vagna-og hjólageymsla, einnig er sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi

Húsfélag og framkvæmdir:
Á undanförnum árum hefur verið farið í umfangsmiklar framkvæmdir á húsinu í kjölfar ástandsskoðunar:
2026 — Tvær hleðslustöðvar settar upp fyrir bílastæði
2026 — Svalagólf slípuð, epoxy málun
2025 — Ytra byrði múrviðgert og húsið málað
2025 — Tröppur múraðar og útidyrahurðir endurnýjaðar

Húsið:
Álfheimar 28 eru hluti af stærra fjölbýli við Álfheima 26–30. Húsið sjálft er fimm hæða fjölbýlishús með 12 íbúðum í stigagangi og alls eru 38 íbúðir í heildarfjölbýlinu.
Sameign hússins er snyrtileg og vel við haldið og er reglulegt þrif innifalið í húsfélagsgjöldum. Aðkoma að húsinu er góð og er snjóbræðsla í hellulögn við inngang og meðfram húsinu. Garður og sameiginleg útisvæði eru gróin og vel hirt.
Góð bílastæðaaðstaða er bæði framan við húsið og við austurenda þess.

Staðsetning:
Einstaklega fjölskylduvæn staðsetning í grónu hverfi við Laugardalinn. Langholtsskóli er í aðeins tveggja mínútna göngufæri án þess að fara þurfi yfir götu og fjórir leikskólar eru í göngufæri.
Álfheimakjarninn með bakaríi, kjörbúð og ísbúð er í örstuttu göngufæri og Glæsibær aðeins um fimm mínútur frá með fjölbreyttri þjónustu.
Laugardalurinn er svo beint við hliðina með útivist, leiksvæðum, frisbígolfvelli, Grasagarðinum og Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.

Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða tinna@haborg.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
03/10/201736.300.000 kr.46.000.000 kr.116.5 m2394.849 kr.
13/08/201324.000.000 kr.26.559.000 kr.116.5 m2227.974 kr.
10/10/200719.560.000 kr.23.900.000 kr.116.5 m2205.150 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (18)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Valshlíð 16
Bílastæði
Opið hús:12. maí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Valshlíð 16
Valshlíð 16
102 Reykjavík
83.6 m2
Fjölbýlishús
211
920 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Skoða eignina Orkureiturinn D2 703
Opið hús:16. maí kl 12:00-13:00
Orkureiturinn D2 703
108 Reykjavík
67.4 m2
Fjölbýlishús
222
1274 þ.kr./m2
85.900.000 kr.
Skoða eignina Kristnibraut 37
Jón Rafn_vefur (9).jpg
Skoða eignina Kristnibraut 37
Kristnibraut 37
113 Reykjavík
113.5 m2
Fjölbýlishús
312
685 þ.kr./m2
77.700.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg íbúð 303
Laugaborg íbúð 303
105 Reykjavík
98.8 m2
Fjölbýlishús
212
1011 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin