Fasteignasalan TORG kynnir virkilega fallega og vel skipulagða 3ja herbergja 94,2 fermetra íbúð á 4. hæð í steinsteyptu húsi við Laugaveg. Íbúðin er björt með stórum gluggum. Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin.
Allar nánari upplýsingar veitir Gunnar Patrik löggiltur fasteignasali í síma 822-9415 eða gunnar@fstorg.is eða Sigurður löggiltur fasteignasali í síma 898-6106 eða sigurdur@fstorg.is / Anddyri: Með parketi á gólfi og fatahengi.
Eldhús: Er bjart, rúmgott og með parketi á gólfi. Hvít eldhúsinnrétting með fallegri viðarborðplötu, helluborði, háfi og góðu skápaplássi. Innbyggður ísskápur og bakaraofn í vinnuhæð. Gott borðpláss er í eldhúsi, gluggar til norðurs.
Samliggjandi stofur. Möguleiki er að nýta aðra sem auka svefnherbergi.
Stofa: Er björt með parketi á gólfi og glugga til suðurs.
Svefnherbergi I: innan af stofu er bjart með parketi á gólfi og glugga til suðurs.
Svefnherberg II: Með parketi á gólfi, góðum skáp og glugga til norðurs.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi, baðkar með sturtuaðstöðu. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Gluggi til norðurs.
Sameign: Er afar snyrtileg með teppi á stigagangi og fallegu viðarhandriði.
Sér
geymsla: Er stór (skráð 15,3 fermetrar) og er staðsett í kjallara.
Kyndiklefi: Er staðsettur í sameiginlegu rými í kjallara.
Hér er um að ræða virkilega fallega og sjarmerandi íbúð í steinsteyptu húsi frá árinu 1920 við Laugaveg í Reykjavík. Frábær staðsetning í göngufæri við alla verslun og þjónustu, menningu og iðandi mannlíf. Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður löggiltur fasteignasali í síma 898-6106 eða sigurdur@fstorg.is / Gunnar Patrik löggiltur fasteignasali í síma 822-9415 eða gunnar@fstorg.is
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald kr. 2.700.- kr. af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. samningi.
Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sanneynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.