Fasteignaleitin
Skráð 4. okt. 2024
Deila eign
Deila

Valshlíð 3

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
75.8 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
79.900.000 kr.
Fermetraverð
1.054.090 kr./m2
Fasteignamat
7.770.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Elísabet Kvaran
Elísabet Kvaran
Löggiltur fasteignasali
Lyfta
Garður
Aðgengi fatl.
Fasteignanúmer
2532647
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Svalir
Byggingarstig
B1 - Byggingarleyfi
Matsstig
U - Leyfi útrunnið

Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.

Kynnum til sölu nýjar og einstaklega vandaðar íbúðir í Hlíðarhorni. Um er að ræða 33 íbúðir við Valshlíð 3 í Reykjavík á suðvesturhorni byggingarreits. Íbúðirnar verða afhentar fullbúnar í janúar 2025.

Íbúð 309 er 75,8 fm þar af 5,1 fm geymsla. Um er að ræða hagkvæma og vel skipulagða 2ja herbergja íbúð á 3. hæð. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með svölum, svefnherbergi og baðherbergi.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um innri garð. Byggingin er miðsvæðis í Reykjavík í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Stutt er því í alla helstu þjónustu, samgöngur, skóla, íþróttaaðstöðu, iðandi mannlíf og stóra vinnustaði.

Í Hlíðarhorni eru 195 íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Allar íbúðir eru með svölum, þaksvölum eða sérafnotareitum á jarðhæð og hannaðar til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra innan íbúða. Allt húsið er klætt að utan með álklæðningum með gluggum úr ál/tré og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar.

Allar innréttingar íbúða eru vandaðar frá Nobilia/GKS og eldhústæki eru af tegundunum Siemens og Witt. Íbúðir skilast með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, spanhelluborði og blástursofni, blöndunartækjum frá ítalska framleiðandanum Mariner, Berry Alloc vinylparketi og flísum frá Álfaborg. Innréttingarþema hverrar íbúðar er fyrirfram ákveðið. Íbúðir eru allar full-loftræstar.

Heimasíða verkefnis: www.hlidarhorn.is

Nánari lýsing íbúðar skv teikningu:

Anddyri: Rúmgóðir fataskápar. Anddyri opnast beint inn í alrými.

Eldhús: Hvít innrétting og eyja frá Nobilia og hvítmunstraður quartz-steinn á borðum. Bjart og stílhreint í vel skipulögðu alrými.

Stofa/borðstofa: Vel skipulagt alrými með útgengi á svalir.

Svefnherbergi: Mjög rúmgott hjónaherbergi með fataherbergi.

Baðherbergi: Með hvítri innréttingu og speglaskáp, “walk-in” sturtu með gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Gráar steinflísar á gólfi og hluta veggja skv þemalýsingu.

Geymsla: Sérgeymsla íbúðar er í kjallara ásamt sameiginlegum hjóla og vagnageymslum.

Hönnunarþema íbúðar 309 : Mjöll 1

Athygli kaupanda eru vakin á því að fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu S8 ehf. sem er jafnframt aðalverktaki og eigandi fasteignarinnar.

Fyrirvarar

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Valshlíð 10
Bílastæði
Skoða eignina Valshlíð 10
Valshlíð 10
102 Reykjavík
82.6 m2
Fjölbýlishús
211
967 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Smyrilshlíð 18
Bílastæði
Skoða eignina Smyrilshlíð 18
Smyrilshlíð 18
102 Reykjavík
81.8 m2
Fjölbýlishús
211
977 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Smyrilshlíð 18 403
Bílastæði
Smyrilshlíð 18 403
102 Reykjavík
81.8 m2
Fjölbýlishús
211
977 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Smyrilshlíð 10
Bílastæði
Skoða eignina Smyrilshlíð 10
Smyrilshlíð 10
102 Reykjavík
84.2 m2
Fjölbýlishús
312
949 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin