Borg fasteignasala kynnir eignina Árbyggð 8, glæsilegt heilsárshús á fallegum stað í þorpinu Laugarási í Biskupstungum. Eignin Árbyggð 8 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 231-4560, birt stærð 104.0 fm. Húsið er danskt EBK hús sem eru þekkt fyrir góða hönnun og gæði. Húsið skiptist í rúmgott alrými sem rúmar stofu, borðstofu og eldhús, 3 svefnherbergi, baðherbergi, gestasnyrtingu og hitakompu. Stór timburpallur með heitum potti og skjólveggjum. Útisturta. Saunuklefi inn af baðherbergi.
Nánari lýsing. Forstofa : Komið er ínn í rúmgóða, flísalagða forstofu með fatahengi.
Forstofuherbergi : Harðparket á gólfum.
Alrými : Rúmgott og hátt til lofts. Rúmar stofu, borðstofu og eldhús. Harðparket á gólfum. Eldhús með fallegri innréttingu. Góð tæki.
Hjónaherbergi: Rúmgott með harðparketi á gólfum. Skápar. Hurð út í garð.
Baðherbergi : Mjög stórt baðherbergi með bæði sturtu og hornbaðkari. Gráar flísar. Góð innrétting með plássi fyrir þvottavel og þurrkara. Saunuklefi inn af baðherbergi.
Herbergi: Harðparket á gólfum.
Gestasnyrting: Gráar flísar á gólfi.
Garður : Mikill trépallur sunnan og vestanmegin hússins. Skjólveggir, heitur pottur og útisturta. Frá húsinu útsýni er fallegt útsýni til suðvesturs.
EBK HUSE A/S er eitt af leiðandi byggingarfyrirtækjum í Danmörku þegar kemur að sumarhúsum. Um er að ræða fjölskyldufyrirtæki, stofnað árið 1976. Boðið er upp á sérfræðiráðgjöf allt byggingarferlið sem tryggir bestu gæði og fyrirmyndar vinnubrögð í hvívetna, á þann hátt er vissa um að viðskiptavinir verði ekki fyrir vonbrigðum með útkomuna.
Húsin eru byggð og sett upp af verkamönnum EBK og efnið er framleitt í eigin verksmiðjum sem tryggir gæði.
Laugarás er lifandi og fjölbreytt þorp við bakka Hvítár, þar sem náttúra, saga og nútímaþjónusta mætast. Í þorpinu er mikill jarðhiti, sem hefur skapað aðstæður fyrir fjölda gróðurhúsa og einstakt vistkerfi. Nú nýverið opnaði hinn glæsilegi baðstaður Laugarás Lagoon, nýtt baðlón sem býður upp á afslöppun í fallegu umhverfi. Á sama stað er einnig veitingastaðurinn Ylja, þar sem gestir geta notið vandaðra rétta í hlýlegu umhverfi. Laugarás státar af fjölbreyttri þjónustu fyrir ferðamenn, þar á meðal Slakka, vinsælum húsdýragarði sem gleður bæði börn og fullorðna.
Í nágrenni Laugaráss eru fjölmargir áhugaverðir staðir. Má þar nefna hið forna biskupssetur Skálholt, einn merkasta sögustað Íslands. Þar sátu biskupar frá árinu 1056 til 1803, og á staðnum er enn starfsemi – þar má finna skóla sem nú er notaður til námskeiðahalds og viðburða.
Nánari upplýsingar veitir Börkur Hrafnsson lögmaður og lögg. fasteignasali, í síma 8924944, tölvupóstur borkur@fastborg.is.Með undirritun sinni á þetta söluyfirlit staðfestir seljandi/seljendur að efni þess sé rétt samkvæmt hans/þeirra bestu vitund. Kaupandi/kaupendur staðfestir/staðfesta með áritun sinni á þetta söluyfirlit að hann/þeir/þau hafi kynnt sér efni þess.