Fasteignaleitin
Skráð 22. sept. 2026

SPÁNAREIGNIR - Santa Rosalia

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
228 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
79.750.000 kr.
Fermetraverð
349.781 kr./m2
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
http://www.spanareignir.isEignalisti
Garður
Svalir
Pallur
Bílastæði
Hleðslustöð
Sérinng.
Fasteignanúmer
103220926
Landnúmer
0
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Verönd og svalir
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEG EINBÝLISHÚS Á TVEIMUR HÆÐUM ÁSAMT KJALLARA – FLOTT RESORT*

Vönduð og falleg einbýlishús á frábærum stað í hinu nýja og glæsilega 700.000 fm., SANTA ROSALIA LAKE AND LIFE RESORT. Santa Rosalia stöðuvatnið er miðpunktur svæðisins og stærsta manngerða stöðuvatn í Evrópu, 16.000 fm. Þar er frábær aðstaða, sandströnd, eyja til að vaða út í, góð aðstaða fyrir vatnaíþróttir og ýmislegt fleira. Á svæðinu er einnig ævintýra golfvöllur, frisbígolfvöllur, göngu-, skokk og hjólaleiðir, picknick svæði, jogasvæði, leikvellir fyrir börnin og ótal margt fleira skemmtilegt. Við vatnið og golfvöllinn er glæsilegur strand- og golfklúbbur, með veitingastöðum og ýmissi þjónustu. Einnig verður matvöruverslun á staðnum, en stutt er í litla bæi í kring með góðu úrvali af verslunum og veitingastöðum. Örstutt frá ströndinni og bátahöfninni (4 km. 15 mín. á hjóli) í Los Alcazares. Mar Menor golfvöllurinn er í göngufæri, en einnig eru fjölmargir fleiri golfvellir á svæðinu. Ca. 1 klst. akstur í suður frá Alicante flugvelli, 30 mín. akstur frá Corvera, nýja alþjóðlega flugvellinum í Murcia. Frábært tækifæri til að eignast glænýtt og fallegt einbýlishús á góðum stað í sólinni. Dásamleg fjölskylduparadís.

Allar upplýsingar veita:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is.  00354 893 2495.
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is. 0034  0034 615112869.

Nánari lýsing:

Húsin eru sérlega vel skipulög og rúmgóð. Á neðri hæð er rúmgóð stofa, borðstofa og eldhús í björtu og opnu rými. Rúmgott svefnherbergi og baðherbergi. Stór verönd og sér garður. Úti og innirými eru vel tengd og mynda skemmtilega heild.

Á efri hæð eru tvö svefnherbergi, bæði með sér baðherbergi. Góðir fataskápar og í öðru herberginu er fataherbergi. Útgengi út á svalir úr báðum herbergjum.

Í kjallara er stórt opið rými, ca. 84 fm, sem hægt er að nýta og innrétta á ýmsa vegu, s.s. sem aukasvefnherbergi, vinnuaðstöðu eða tómstundarrými.. "English Patio" fyrir birtu og loftun. 

Góður garður með einkasundlaug og sólbaðsaðstöðu. Frábær aðstaða til að grilla og njóta lífsins með fjölskyldu og vinum. Bílastæði inni á lokaðri lóð og hleðslustöð fyrir rafbíl. Lagnir fyrir sólarsellur (tvær sólarsellur fylgja).

Um er að ræða 6 hús í lengju á misstórum lóðum, 5 hús eru á tveimur hæðum og eitt endahús á einni hæð. 

Lóð 183 fm
Hús 127 fm
Kjallari 84 fm
Tvennar svalir 13 + 4,4 fm

Örstutt göngufæri er að Santa Rosalia stöðuvatninu með frábærri sólbaðsaðstöðu, ströndum, og möguleika á ýmsum skemmtilegum vatnaíþróttum. Þar er líka frábær aðstaða fyrir ævintýragolf, tennis, körfubolta ofl. Frábær veitingaaðstaða í nýja klúbbhúsinu við vatnið, líkamsrækt ofl.

Ca. 15 mín. tekur að hjóla niður á á skemmtilegu göngugötuna í Los Alcazares, sem liggur niður á fallega sandströnd. Fjöldi verslana og veitingastaða eru þar á svæðinu. Meðfram ströndinni er margra kílómetra langt “promenade” sem býður upp á skemmtilega göngutúra. Glæsileg smábáta og snekkjuhöfn og fjölbreytt mannlíf. Fjölmargir vinsælir og skemmtilegir golfvellir eru í næsta nágrenni og hinn vinsæli Mar Menor er í göngufæri frá Santa Rosalia svæðinu.

Verð miðað við gengi 1Evra=145ISK.
Verð frá 550.000 Evrum  (79.750.000 ISK) + skattur 10% og ca. 3% kostn. við kaupin. 
Afhending í apríl 2028.

Los Alcazares, sem er í næsta nágrenni, er ekta spænskur strandbær með fjölbreyttu bæjarlífi, útimarkaði og götuhátíðum og gefst hér einstakt tækifæri til að eignast vandað og fallegt einbýlishús með nútímaþægindum í sjarmerandi spænsku umhverfi. Skólar og heilbrigðisþjónusta í næsta nágrenni. Los Alcazares stendur við Mar Menor, lítið innhaf frá Miðjarðarhafinu, og er þar mikil veðursæld. Að meðaltali eru þar um 305 sólardagar, 30 skýjaðir og 30 rigningardagar á ári.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með hagstæðu láni frá spænskum banka.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:  www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: strönd, ný eign, sér garður, kjallari, golf,
Svæði: Costa Calida, Los Alcazares, Santa Rosalia, Mar Menor,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
103220926

Myndir (17)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Berjarimi 53
Efsta hæð
Skoða eignina Berjarimi 53
Berjarimi 53
112 Reykjavík
208.2 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
614
710 þ.kr./m2
147.900.000 kr.
Skoða eignina Hlíðarvegur 27
Skoða eignina Hlíðarvegur 27
Hlíðarvegur 27
625 Ólafsfjörður
212.1 m2
Einbýlishús
714
235 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Santa Rosalia
Bílastæði
Á einni hæð
Hleðslustöð
SPÁNAREIGNIR - Santa Rosalia
Spánn - Costa Blanca
311 m2
Einbýlishús
433
312 þ.kr./m2
97.150.000 kr.
Skoða eignina Fossagil 6
Bílskúr
Heitur pottur
Skoða eignina Fossagil 6
Fossagil 6
603 Akureyri
205.3 m2
Einbýlishús
625
725 þ.kr./m2
148.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin