ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu Lerkidal 1, 260 Reykjanesbær. Glæsileg eign sem samanstendur af anddyri, sjónvarpsholi, fjórum svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, þvottahúsi, alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu. Innbyggður, innréttaður bílskúr sem er í útleigu. Eignin er skráð 239m2 og þar af er bílskúr 47,3m2.
Nánari upplýsingar veita:
Dísa Edwards Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5510, tölvupóstur disa@allt.is
Jóna Björg Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5506, tölvupóstur jona@allt.is.
* Innfelld ljós
* Gólfhiti í öllu húsinu
* Sérsmíðaðar innréttingar og skápar frá HTH
* Rafmagns heitapottur
* Stór sólpallur
* Útleigu íbúð
* Stór innkeyrsla með snjóbræðslukerfi
Nánri lýsing:
Anddyri: Mjög rúmgott, ljósar flísar á gólfi með góðum fataskáp. Innangengt í bílskúr.
Eldhús / Stofa: Harðparket á gólfi, hvít innrétting með góðri eyju. Stofa og borðstofa er í opnu rými og er þar útgengt út á rúmgóðan sólpall með heitum potti.
Sjónvarpshol: Harðparket á gólfi og er í miðrými hússins.
Hjónaherbergi: Afar rúmgott og bjart með gólfsíðum glugga og svalahurð útá pall. Harðparket á gólfi og rúmgóður fataskápur.
Barnaherbergin Eru þrjú öll með góðum fataskápum og parketi á gólfum. Eitt af þeim hefur verið útbúið sem fataherbergi.
Þvottahús: Með góðri hvítri innréttingu og flísum á gólfi. Hurð út á lóð.
Sólpallur: Stór með heitum potti.
Bílskúr: Búið er að útbúa íbúð sem er í leigu. Þar er eldhús, baðherbergi og salerni. Eignin er eins og er Airbnb og hægt að hafa það áfram ef áhugi er á því eða hafa til einkanota.
Afar vandað, bjart og vel skipulagt fjölskyldueign í vinsælu Stapaskólahverfi sem vert er að skoða.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.