Fasteignaleitin
Skráð 16. júlí 2026

Furuás 25

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
249.2 m2
8 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
159.900.000 kr.
Fermetraverð
641.653 kr./m2
Brunabótamat
125.300.000 kr.
Byggt 2016
Svalir
Pallur
Hleðslustöð
Sérinng.
Fasteignanúmer
23301035
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

Kynslóðahús – frábært tækifæri fyrir eldra fólk að minnka við sig og ungt fólk að komast í sérbýli.
Við höfum fengið í sölu raðhús á tveimur hæðum í Áslandi 4 í Hafnarfirði, steinsnar frá upplandi Hafnarfjarðar með náttúruparadís við Hvaleyrarvatn og Helgafell í bakgarðinum, Gróðrastöðina Þöll og Hestamannafélagið Sörla. Frá húsinu er fágætt, óskert útsýni yfir Skarðsheiði, Esjuna, Móskarðshnúka, Bláfjöll og Helgafell.
Húsið var byggt árið 2016  og er 249,2 fermetrar. Af núverandi eigendum var eigninni skipt í tvær jafnstórar íbúðir sem hefur verið gert á góðan hátt þannig að auðvelt er að halda núverandi skiptingu eða breyta húsinu aftur í eina íbúð með tiltölulega lítilli fyrirhöfn og tilkostnaði. Í dag búa eldri hjón á efri hæð og dóttir og barnabarn á neðri hæð. Frábær lausn fyrir ungt fólk á fasteignamarkaði í dag. Skv. upprunalegum teikningum var efri hæðin eitt rými með eldhúsi og stofu. Gipsveggur á efri hæð var settur upp til að búa til svefnherbergi þar.

Skoðaðu 3 D myndir af eigninni hér efri hæð 


Skoðaðu 3 D myndir af eigninni hér neðri hæð

Nánari lýsing:
Frá götu er gengið inn á efri hæð hússins. Íbúðarými er 84,4 fermetrar og bílskúr 40,2 fermetrar. Rúmgóð forstofa með flísum á gólfi og fataskápum. Þaðan er innangengt á baðherbergi með sturtu. Innbyggð blöndunartæki. Hiti er í gólfi á forstofu og baðherbergi.
Innangengt úr forstofu er gengið inn í stóran bílskúr þar sem er vítt til veggja og hátt til lofts. Epoxy á gólfi, veggfestar hillur, innrétting með efri skápum, vaskur.  Sannkallaður herramannshellir þar sem hvort tveggja er pláss fyrir áhugamál og bifreið.
Úr forstofu er gengið inn í alrými sem telur opið eldhús og stofu. Frá stofu er gengið út á svalir.
Svefnherbergi er mjög rúmgott með fataskápum, gólfsíðum gluggum og útgengi út á stóran pall til suðurs. Gert er ráð fyrir heitum potti á palli skv. teikningum. Þá er gert ráð fyrir lýsingu í steyptum skjólveggjum (sjá myndir).
Á allri efri hæðinni er aukin lofthæð.
Frá efri hæð er stigi á neðrihæð þar sem er opið í dag með hurð en léttur veggur skilur að íbúðirnar. Auðvelt er að loka alveg á milli en einnig að fjarlægja vegginn til að opna á milli. Fallegt, svart járnhandrið við stiga á milli hæða.
Frá götu er gengið niður þrep niður á stigapall innanhús sem notaður er sem forstofa fyrir neðri hæð. Handrið við þrep.
Á neðri hæð sem er 124 fermetrar eru þrjú jafnstór svefnherbergi, stórt baðherbergi með baðkari og sturtu, gott þvottahús og geymsla sem hægt er að nýta sem fjórða herbergið en hún er gluggalaus.
Í alrými er rúmgott eldhús með stórri eyju. Falleg innrétting frá Ikea sem gefur möguleika á að skipta um framhliðar ef fólk kýs. Opið er úr eldhúsi í stofu. Úr alrýminu er útgengt út á gróna lóð þar sem er sólrík til ca. kl. 14 á sumrin.
Innréttingar í eldhúsum, baðherbergjum og sólbekkir eru með fallegum, ljósum quartz stein.
Um er að ræða fallegt hús í nýlegu hverfi sem skipt hefur verið í tvær íbúðir á sniðugan hátt. Miklir möguleikar eru á útleigu annarrar hvorrar íbúðar eða breyta eigninni í eitt híbýli.
Hiti er í bílaplani og í stiga niður á neðri hæð.
Síðasta sumar (2025) var allt tréverk utanhúss málað í öllum þremur húsunum sem telja raðhúsalengjuna.
Fasteignasala og eiganda er ekki kunnugt um neina galla á eigninni en vekja athygli á að lokaúttekt kann að leiða til þess að frágangs sé þörf á stöku stað. Tekið verður mið af því við verðlagningu eignarinnar. Er kaupandi því hvattur til að kynna sér eignina m.t.t. framangreinds fyrir kaup.
 
Nánari upplýsingar gefa Ásmundur Skeggjason lögg.fsts. í s: 895-3000, as@hofdi.is og Lilja Margrét Olsen s: 862-4642.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Höfði Fasteignasala
http://www.hofdi.is

Myndir (33)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Suðurvangur 17
Efsta hæð
Skoða eignina Suðurvangur 17
Suðurvangur 17
220 Hafnarfjörður
79.7 m2
Fjölbýlishús
413
777 þ.kr./m2
61.900.000 kr.
Skoða eignina Miðvangur 41
20260603-DJI_0905.jpg
Skoða eignina Miðvangur 41
Miðvangur 41
220 Hafnarfjörður
67.3 m2
Fjölbýlishús
211
771 þ.kr./m2
51.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 6
Hringhamar 5 Hluteildarlán.jpg
Skoða eignina Hringhamar 6
Hringhamar 6
221 Hafnarfjörður
82.3 m2
Fjölbýlishús
312
789 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 6
Hringhamar 5 Hluteildarlán.jpg
Skoða eignina Hringhamar 6
Hringhamar 6
221 Hafnarfjörður
73.6 m2
Fjölbýlishús
312
855 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin