Fasteignaleitin
Skráð 22. júní 2026

Kumlamýri 22

Nýbygging • RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-225
203.6 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
159.900.000 kr.
Fermetraverð
785.363 kr./m2
Sérinng.
Fasteignanúmer
252189213
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

Seld með fyrirvara

Til afhendingar strax, hringdu núna og ég sýni þér þessa glæsilegu eign. Ásmundur Skeggjason s 895 3000.- Bjóddu þína eign upp í.

Hér getur þú skoðað eignina í 3 D

Bjart og rúmgott 204 fm tengi / einbýli á rólegum og eftirsóttum stað á Álftanesi – með möguleika á allt að fjórum góðum svefnherbergjum. Suður verönd er í garði sem snýr til suðausturs og garði með kvöldsól. Búið að jarðvegsskipta á lóð. Möguleiki er að fá húsið lengra komið í samráði við kaupanda. 

Í rólegri botnlangagötu á Álftanesi stendur Kumlamýri 22 – glæsilegt nýbyggt heimili þar sem gæði, næði og náttúra fara saman. Hér gefst einstakt tækifæri fyrir fjölskyldur eða þá sem vilja rúmgott og nútímalegt heimili með verönd og garði sem bjóða upp á skjól og notalega útivist á eigin lóð – aðeins í nokkurra mínútna akstursfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu.

Vel skipulagt rými með sveigjanleika

Heimilið er hannað með þremur rúmgóðum svefnherbergjum, en sjónvarpshol á efri hæð býður upp á möguleika á fjórða herbergi – hvort sem um er að ræða barnaherbergi, heimaskrifstofu eða fjölnota rými.
Alrýmið er bjart og opið með eldhúsi, stofu og borðstofu í samfelldu flæði. Þaðan er útgengt á rúmgóða verönd sem snýr til suðausturs og nýtur sólar frá hádegi og langt fram eftir degi, meðan garðurinn snýr til suðvesturs og fær hlýja kvöldsól á björtum sumardögum.
Tvö baðherbergi eru í húsinu – eitt á hvorri hæð – og þvottahús með glugga. Innangengt er úr íbúðinni í rúmgóðan 32 m² bílskúr sem eykur notagildi hússins verulega.

Gæði í hverju smáatriði
Húsið er fullbúið að utan með einstaklega vandaðri álklæðningu frá Málmtækni – efni sem sameinar fágað útlit og lágmarksviðhaldsþörf. Gluggar eru ál/viður og húsið einangrað samkvæmt nýjustu byggingarkröfum.
Lóðin verður tyrfð, með hellulögu bílaplani og 60 m² verönd að aftan. Lagnir og rafmagn eru til staðar fyrir heitan pott, og rafbílahleðsla fylgir með.
Að innan eru veggir sparslaðir, grunnaðir og málaðir í einni umferð, loft frágengin og gólf flotuð. Gólfhiti er í öllum rýmum og raflagnir tilbúnar (með vinnuljósum í öllu húsinu). Baðherbergi eru flísalögð og tilbúin undir innréttingar. Húsið verður afhent með innréttingum frá HTH, eldhústækjum frá AEG og blöndunartækjum frá Gröhe. Það sem eftir stendur eru gólfefni, ljós og lokamálun – sem nýr eigandi getur valið eftir eigin smekk og stíl.

// Aukin lofthæð
// Gólfsíðir gluggar að hluta
// Innangengur bílskúr
// Gólfhiti
// Vandaðar innréttingar
// Garður snýr vel að sólu
// 3 - 4 svefnherbergi + 2 - 3 Stofur + 2 Baðherbergi
// þvottahús
// Innfelldar lýsingar í lofti að hluta
// Free home kerfi

Ró, náttúra og nálægð við borgina
Álftanes er þekkt fyrir einstakt landslag, víðáttumikla strandlínu og friðsælt samfélag. Gönguleiðir meðfram ströndinni, fuglalíf við Bessastaðatjörn og fjölbreytt útivist gera svæðið að eftirsóttum búsetukosti. Samtímis er innan við 10 mínútna akstur í Garðabæ, þar sem öll helsta þjónusta, skólar og íþróttaaðstaða er til staðar. Hér sameinast lífsgæði og náttúrulegt næði – með borgina innan seilingar.
Afhending
Afhending er strax, ekki eftir neinu að bíða, bara fara að pakka. 

Allar nánari upplýsingar veitir Ásmundur Skeggjason fasteignasali as@hofdi.is, Gsm 895 3000 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Höfði Fasteignasala
http://www.hofdi.is

Myndir (38)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skógarlundur 6
Bílskúr
Skoða eignina Skógarlundur 6
Skógarlundur 6
210 Garðabær
215.7 m2
Einbýlishús
614
857 þ.kr./m2
184.900.000 kr.
Skoða eignina Hringbraut 120
Bílastæði
Skoða eignina Hringbraut 120
Hringbraut 120
101 Reykjavík
128.6 m2
Fjölbýlishús
322
1088 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Skoða eignina Barðastaðir 41
Bílskúr
Skoða eignina Barðastaðir 41
Barðastaðir 41
112 Reykjavík
225.6 m2
Raðhús
614
664 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Grænlandsleið 19
Til leigu
3D Sýn
Bílskúr
Grænlandsleið 19
113 Reykjavík
240.4 m2
Raðhús
524
665 þ.kr./m2
159.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin