Fasteignaleitin
Opið hús:15. mars kl 13:30-14:00
Skráð 9. apríl 2024

Skyggnisbraut 26-28

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarholt og Úlfarsárdalur-113
63.4 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
56.900.000 kr.
Fermetraverð
897.476 kr./m2
Fasteignamat
57.850.000 kr.
Brunabótamat
37.650.000 kr.
Mynd af Heiðar Friðjónsson
Heiðar Friðjónsson
Löggildur Fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2352652
Landnúmer
219633
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upphaflegar
Frárennslislagnir
Upphaflegar
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Upphaflegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suður svalir
Lóð
1,48
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Valhöll fasteignasala og Heiðar Friðjónsson lögg. fast. kynna í einkasölu glæsilega 2ja herb. 63,4 fm íbúð á 2- hæð, með suður svölum í lyftu húsi við Skyggnisbraut 26-28 í Úlfarsárdal Reykjavík. Frábær eign til að komast inn á fasteignamarkaðinn.

Nánari lýsing:
Rúmgott hol með skáp og stórum spegli, harðparket á gólfi, Eldhús með fallegri innréttingu, góðum borðkrók og harðparketi á gólfum, innbyggð uppþvottarvél fylgir, eldhús er opiðinn í stofu.  Rúmgóð og björt stofa með harðparketi á gólfi, úr stofu er útgengi út á suður svalir.  Baðherbergi með sturtu, flísum á veggjum og gólfi, innrétting fyrir þvottarvél og þurrkara og skolvaskur.  Herbergið er rúmgott með skápum og harðparketi á gólfi. Geymsla innan íbúðar og er í dag notuð sem skrifstofa.  Í kjallara er sameiginleg vagna og hjólageymsla.  Allar innréttingar og hurðir eru frá Parka og eru CPL-Laminate. Búið er að setja hljóðvistarplötur á veggi og loft. Um er að ræða mjög hentuga eign fyrir fyrstu kaupendur.  Eignin er laus fljótlega eftir kaupsamning.

Pantið skoðun hjá Heiðari s. 693-3356 eða á heidar@valholl.is

Skyggnisbraut 26-28 er á góðum stað í hverfinu í húsi sem tekið var í notkun 2017.

Úlfarsárdalur er eitt nýjasta hverfi borgarinnar.  Eitt af einkennum hverfisins er mikil nánd við náttúruna og í göngufæri við hverfið eru náttúruperlur eins og Úlfarsfellið, Reynisvatn, Hafravatn og Hólmsheiðin.
Hverfið státar einnig af metnaðarfullu starfi, leikskóla, grunnskóla, frístundaheimili, öflugri félagsmiðstöð og íþróttafélaginu Fram.


Um er að ræða íbúð 02-02 skráð 63,4 fm skv. fmr.

Allar frekari uppl. um eignina veitir:
Heiðar Friðjónsson lögg. fast í s. 693-3356 eða á heidar@valholl.is 


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
17/05/202451.700.000 kr.57.000.000 kr.63.4 m2899.053 kr.
12/08/201610.650.000 kr.28.900.000 kr.63.4 m2455.835 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Dalsbraut 5
Skoða eignina Dalsbraut 5
Dalsbraut 5
260 Reykjanesbær
104 m2
Fjölbýlishús
413
672 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 5B - íb 101
Bílastæði
Jöfursbás 5B - íb 101
112 Reykjavík
106.8 m2
Fjölbýlishús
31
842 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 5B - íb 402
Bílastæði
Jöfursbás 5B - íb 402
112 Reykjavík
96.6 m2
Fjölbýlishús
312
910 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Skoða eignina Holtsvegur 47
Skoða eignina Holtsvegur 47
Holtsvegur 47
210 Garðabær
105.1 m2
Fjölbýlishús
213
713 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin